1246. Egill SH 195 ex Tungufell SH 31. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta Egil SH 195 áður en hann var yfirbyggður en þarna var m.a nýbúið að lengja bátinn, setja á hann bakka og skipta um brú. Egill hét upphaflega Fylkir NK 102 og var smíðuð í Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. árið 1972 fyrir … Halda áfram að lesa Egill SH 195
Helganes ST 11
163. Helganes ST 11 ex Háhyrningur BA 233. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Helganes ST 11 hét upphaflega Vinur ÍS 102 og var smíðaður fyrir Hnífsdælinga í Þýskalandi árið 1960. 101 brl. að stærð í upphafi en síðar mældur niður í 88 brl. en það var gert árið 1974. Vinur fékk nafnið Páll Pálsson ÍS 101 árið … Halda áfram að lesa Helganes ST 11
Hringur seldur til Nýfundnalands
Hringur SH 153 ex Marina Polaris. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Hringur SH 153 frá Grundarfirði hefur verið seldur til Nýfundnalands og er kominn þangað. Hringur SH 153 var keyptur til landsins frá frá Fraserburgh í Skotlandi og kom hann til heimahafnar í Grundarfirði á Gamlársdag 2005. Hringur SH 153, sem var í eigu Guðmundar Runólfssonar hf, … Halda áfram að lesa Hringur seldur til Nýfundnalands
Jónas Gunnarsson SH 177
7714. Jónas Gunnarsson SH 177 ex Tríton ST 100. Ljósmynd Vigfús Markússon. Jónas Gunnarsson SH 177 hét upphaflega Tríton ST 100 og var smíðaður hjá Bláfelli árið 2012. Árið 2012 var Tríton, sem var með heimahöfn á Hólmavík, seldur til Ólafsvíkur þar sem hann fékk nafnið Jónas Gunnarsson SH 177 og það nafn ber hann … Halda áfram að lesa Jónas Gunnarsson SH 177
Fosnabátar komu og fóru
Fosna Victoria og Fosna Alpha koma til hafnar á Húsavík í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þrír norskir þjónustubátar við fiskeldi höfðu viðdvöl á Húsavík í dag en þeir lögðu upp í þessa siglingu frá Reyðarfirði í gær. Fyrstur kom Fosna Gregar og í kjölfarið komu Fosna Victoria og Fosna Alpha. Bátarnir lögðu svo úr höfn … Halda áfram að lesa Fosnabátar komu og fóru
Ríkey RE 10
7316. Ríkey RE 10 ex Dagbjört RE 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Ríkey RE 10 hét upphaflega Hafrún SU 49 og var með heimahöfn á Eskifirði. Báturinn var smíðaður hjá Trefjum árið 1991. Árið síðar fékk Hafrún einkennisstafin ÍS 619 með heimahöfn á Flateyri. Frá árinu 1995 til 2004 hét hann Hilmir BA 48 með … Halda áfram að lesa Ríkey RE 10
Jón forseti og Andvari
992. Jón forseti. - 1499. Andvari VE 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Á þessari mynd sem tekin var á Grandanum 17. apríl sl. gefur m.a að líta Jón forseta og Andvara VE 100. Andvari hét upphaflega Flosi ÍS 15 og var smíðaður í Bátasmiðjunni Vör h/f á Akureyri árið 1977. Jón forseti hét upphaflega Benedikt … Halda áfram að lesa Jón forseti og Andvari
Ásrún SH 37
2195. Ásrún SH 37 ex Valdi SH 251. Ljósmynd Vigfús Markússon. Ásrún SH 37 hét upphaflega Sæstjarnan RE 850 og var smíðuð á á Stokkseyri árið 1992. Árið 2000 fékk báturinn, sem er tæplega 7 brl. að stærð, nafnið Ingólfur GK 148 og ári síðar var hann orðinn Helgi GK 404. Heimahöfnin var Sandgerði. Tíu árum … Halda áfram að lesa Ásrún SH 37
Gullver heitir nú Elizabeth H
IMO 8211851. Elizabeth H ex Gullver NS 12. Ljósmynd Magnús Jónsson 2026. Síldarvinnslan hefur selt skuttogarann Gullver NS 12 til Gambíu þar sem hann fékk nafnið Elizabeth H með heimahöfn í Banjul. Gullver NS 12 var smíðaður í Flekkefjord í Noregi árið 1983 fyrir Gullberg h/f á Seyðisfirði. Lesa meira um skipið. Með því að … Halda áfram að lesa Gullver heitir nú Elizabeth H
Pétur mikli
7487. Pétur mikil. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Efnispramminn Pétur mikli var smíðaður hjá Deggendorfer Werft í Þýskalandi árið 1982 og er gerður út af Hagtaki hf. Þessar myndir voru teknar nú síðdegis en verið er að dýpka með Þvergarðinum í Húsavíkurhöfn vegna lengingar hans sem fyrirhuguð er. Pétur mikli er 51 metrar að lengd, lengd … Halda áfram að lesa Pétur mikli









