Costan AK 26

6195. Costan AK 26 ex Már HU 545. Ljósmynd Vigfús Markússon.

Costan AK 26 hét upphaflega Kvika ÞH 345 og var smíðaður hjá Bátsmiðjunni Mótun árið 1981.

Báturinn var smíðaður fyrir Héðinn Sverrisson og fimm aðra aðila í Mývatnssveit.

Árið 1987 fékk báturinn nafnið Kvikk ÞH 112 með heimahöfn á Húsavík. Fjórum árum síðar varð Kvikk ÞH 102 og síðar sama ár fékk hann nafnið Lára ÞH 102.

Frá árinu 1995 til ársins 2017 hét báturinn Sædís ÞH 305 (ÞH 105 til að byrja með) og heimahöfnin áfram á Húsavík.

Árið 2017 var báturinn seldur til Skagastrandar þar sem hann fékk nafnið Már HU 545 en
frá árinu 2021 hefur báturinn heitið Costan AK 26 með heimahöfn á Akranesi.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd