
Hrímnir ÁR 51 frá Eyrarbakka kemur hér að landi í Þorlákshöfn um árið en þetta nafn bar báturinn á árunum 1999 – 2003.
Hrímnir hét upphaflega Sigrún ÞH 169 og var í eigu Sævars h/f á Grenivík. Báturinn var smíðaður hjá Vör á Akureyri árið 1976 en 1978 var hann seldur til Siglufjarðar þar sem hann fær nafnið Rögnvaldur SI 77.
Haustið 1980 var Rögnvaldur seldur til Reykjavíkur þar sem hann fékk nafnið Reykjaborg RE 25.
Reykjaborg fær nafnið Von BA 33 1998, ári síðar heitir hann Hrímnir ÁR 51 með heimahöfn á Eyrarbakka.
Í apríl árið 2003 fær hann nafnið Harpa GK 40 og árið 2005 fær hann nafnið Björgvin ÍS 468.
Sumarið 2007 kaupir Gentle Giants á Húsavík bátinn og nefnir Sylvíu sem hefur upp frá því siglt með ferðamenn á hvalaslóðir Skjálfandaflóa.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution