
Snætindur ÁR 88 kemur hér að landi í Þorlákshöfn um árið en þaðan var báturinn gerður út um áratugaskeið.
Það var Borgarey hf. sem keypti bátinn frá Vestmannaeyjum árið 1972 en þar bar hann nafnið Blátindur VE 30.
Upphaflega hét báturinn Árni Þorkelsson KE 46 smíðaður árið 1961 í Þýskalandi en nöfnin sem báturinn hefur borið eru Andvari KE 93, Blátindur VE 30, Snætindur ÁR 88, Gulltoppur ÁR 321, Litlaberg ÁR 155, Búddi KE 9, Happasæll KE 94 og Happasæll BA 94.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution