1752. Gissur Ár 6. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Á þessari mynd Olgeirs Sigurðssonar sjáum við rækjutogarann Gissur ÁR 6 sem Ljósavík í Þorlákshöfn átti og gerði út. Gissur ÁR 6 hét Flatey ÞH 383 um tíma en heitir í dag Brynjólfur VE 3 og er gerður út jöfnum höndum til neta- og togveiða. Brynjólfur er í … Halda áfram að lesa Gissur ÁR 6
Flokkur: Togarar
Akureyrin EA 10
1369. Akureyrin EA 10 ex Guðsteinn GK 140. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér koma myndir af Akureyrinni EA 10 sem síðar varð EA 110 en upphaflega Guðsteinn GK 140. Skipið var smíðað í Póllandi 1974 fyrir Samherja hf. í Grindavík. Frændurnir Kristján Vilhelmsson, Þorsteinn Már Baldvinsson og Þorsteinn Vilhelmsson kaupa nær allt hlutafé í Samherja hf. … Halda áfram að lesa Akureyrin EA 10
Málmey og Drangey
1833. Málmey Sk 1 ex Sjóli HF 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Hér koma myndir sem sýna togarana Málmey SK 1 og Drangey SK 2 en þær tók ég í ágústmánuði 2017 þegar Drangey SK 2 kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Sauðárkróki. Málmey SK 1 var smíðuð í Flekkefjord í Noregi 1987 fyrir … Halda áfram að lesa Málmey og Drangey
Björgúlfur EA 312
2892. Björgúlfur EA 312. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2019. Samherjatogarinn Björgúlfur EA 312 kom til heimahafnar úr Barentshafinu í dag og tók Haukur Sigtryggur þessa mynd þá. Björgúlfur var smíðaður í Tyrklandi árið 2017 og kom til heimahafnar á Dalvík 1. júní það ár. Björgúlfur er einn fjögurra togara sem smíðaður er eftir sömu teikningu fyrir íslenskar útgerðir … Halda áfram að lesa Björgúlfur EA 312
Þórunn Sveinsdóttir í Karstensens Skibsværft
2401. Þórunn Sveinsdóttir í Karstensens Skibsværft í Skagen. Ljósmynd Ásgeir Kristjánsson 2019. Í síðustu viku var byrjað að púsla Þórunni Sveinsdóttur VE 401 saman í Karstensens Skibsværft A/S í Skagen. Þar er verið að lengja hana um 6,6 metra sem mun gera þetta glæsilega skip enn glæsilegra. Með því að smella á myndina er hægt … Halda áfram að lesa Þórunn Sveinsdóttir í Karstensens Skibsværft
Hjalteyrin EA 306 á toginu í Jökuldýpi
1476. Hjalteyrin EA 306 ex Björgúlfur EA 312. í fjarska er 1937. Björgvin EA 311. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð. Þessar myndir sem nú birtast tók Hólmgeir Austfjörð í Jökuldýpi í vikunni en þar voru togarar að fiska vel. Einn af þeim var gamli Björgúlfur EA 312 sem nú heitir Hjalteyrin EA 306. Togarinn var smíðaður árið … Halda áfram að lesa Hjalteyrin EA 306 á toginu í Jökuldýpi
Þórunn Sveinsdóttir VE 401 í lengingu í Skagen
2401. Þórunn Sveinnsdóttir VE 401 Karstensens Skibsværft A/S í dag. Ljósmynd Ásgeir Kristjánsson. Fékk þessa mynd senda frá gömlum skipsfélaga í dag sem hann tók í dag í Karstensens Skibsværft A/S í Skagen. Þarna er búið að skera Þórunni Sveinsdóttur VE 401 í sundur og draga til en þarna eiga að koma 6,6 metrar inn … Halda áfram að lesa Þórunn Sveinsdóttir VE 401 í lengingu í Skagen
Björg EA 7 á toginu við Eldeyjarboða
2894. Björg EA 7. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hólmgeir Austfjörð skipverji á Ottó N Þorlákssyni VE 5 tók þessa mynd í gær af Samherjatogaranum Björgu EA 7 á miðunum við Eldeyjarboða. Björg EA 7 kom til heimahafnar á Akureyri um hádegisbil þann 31. október 2017. Hún var fjórða og síðust í röð systurskipa sem smíðuð voru … Halda áfram að lesa Björg EA 7 á toginu við Eldeyjarboða
Ísborg II ÍS 260 skiptir um eigendur
1472. Ísborg II ÍS 260 ex Klakkur SK 5. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2018. Gunnar Torfason útgerðarmaður á Ísafirði hefur keypt togarann Ísborgu II ÍS 260 af Arnari Kristjánssyni. Það er bb.is sem greinir frá þessu í dag en Ísborg II ÍS 260 hét áður Klakkur SK 5, Klakkur SH 510 og Klakkur VE 103. Smíðaður1977 … Halda áfram að lesa Ísborg II ÍS 260 skiptir um eigendur
Vörður og Áskell komnir á flot
2962. Vörður ÞH 44 - 2970. Þinganes SF 25. Ljósmynd Gjögur hf. 2019. Vörður ÞH 44 og Áskell ÞH 48 sem Gjögur hf. er að láta smíða eru komnir á flot í Víetnam þar sem skrokkar skipanna eru smíðaðir. Það sama má segja um Þinganes SF 25 sem Skinney-Þinganes hf. er að láta smíða á … Halda áfram að lesa Vörður og Áskell komnir á flot









