2265. Arnar HU 1 ex Neptun. Ljósmynd Þór Jónsson 2019. Frystitogarinn Arnar HU 1 frá Skagaströnd sést hér á toginu en þessi 60 metra togari er í eigu FISK Seafood ehf. á Sauðárkróki. Skagstrendingur hf. á Skagaströnd keypti togarann frá Rússlandi árið 1996 og sagði m.a svo frá í 5. tbl. Ægis það ár: Nýr … Halda áfram að lesa Arnar HU 1
Flokkur: Togarar
Sirrý ÍS 36 að veiðum
2919. Sirrý ÍS 36 ex Stamsund N-11-VV. Ljósmynd Þór Jónsson 2019. Skuttogarinn Sirrý ÍS 36 frá Bolungarvík er hér að veiðum sunnan við land en myndina tók Þór Jónsson skipverji á Ljósafelli SU 70. Sirrý ÍS 36, sem áður hét Stamsund N-11-VV, var keypt frá Noregi og kom inn í flotann í janúar árið 2016. … Halda áfram að lesa Sirrý ÍS 36 að veiðum
Kaldbakur og Björgúlfur að veiðum
2891. Kaldbakur EA 1 - 2892. Björgúlfur EA 312. Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2019. Á þessari mynd Gunda eru skuttogararnir Kaldbakur EA 1 og Björgúlfur EA 312 að veiðum. Myndin var tekin í fyrrdag um borð í þriðja Samherjatogaranum af þessari gerð sem er Björg EA 7. Með því að smella á myndina er hægt … Halda áfram að lesa Kaldbakur og Björgúlfur að veiðum
Geysir BA 25
1608. Geysir BA 25 ex Lómur HF 177. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Geysir BA 25 siglir hér til hafnar á Húsavík um árið en hann var á rækjuveiðum undir stjórn Þórðar Birgissonar. Geysir hét upphaflega Baldur EA 108 á íslenskri skipaskrá en þegar hann var keyptur til Dalvíkur 1981 af Upsaströnd hf. hét hann Glen Urquhart … Halda áfram að lesa Geysir BA 25
Björgúlfur EA 312 á veiðislóðinni
2892. Björgúlfur EA 312. Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2019. Gundi tók þessar myndir af Samherjatogaranum Björgúlfi EA 312 á veiðislóðinni sl. mánudag en hann var um borð í systurskipinu Björgu EA 7. Þessi Björgúlfur EA 312 er þriðja skipið sem ber þetta nafn og EA 312 en sá fyrsti kom 1960 og var einn a-þýsku … Halda áfram að lesa Björgúlfur EA 312 á veiðislóðinni
Breki VE 61 fiskaði 1200 tonn í mars
2861. Breki VE 61. Ljósmynd Jói Myndó 2019. Togarinn Breki VE fiskaði 1.200 tonn í nýliðnum marsmánuði og á heimasíðu VSV segir að þetta sé metafli skipsins í einum mánuði og umfram björtustu vonir og væntingar. 2861. Breki VE 61. Ljósmynd Jói Myndó 2019. „Skemmst er frá að segja að gangurinn á Breka er alveg … Halda áfram að lesa Breki VE 61 fiskaði 1200 tonn í mars
Drangey SK 2 að veiðum
2893. Drangey SK 2 . Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2019. Skuttogarinn Drangey SK 2 hefur fiskað vel að undanförnu og á þessum myndum Gunda er hún að veiðum fyrir Suðulandi fyrir nýliðna helgi. Drangey hefur landað að undanförnu í Grundarfirði þaðan sem aflanum er ekið til vinnslu hjá FISK Seafood á Sauðárkróki. 2893. Drangey SK … Halda áfram að lesa Drangey SK 2 að veiðum
Hitti fyrir gamlan kunningja norðarlega í Smugunni
ESKS. Steffano EK 16-01 ex Steffen C GR 6-22. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2019. Alltaf gaman að fá gamla "kunningja" í heimsókn segir Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á rækjutogaranum Reval Viking við mynd sína í Fésbókarfærslu hans í dag. Myndin er af rækjutogaranum Steffano sem er í eigu sama fyrirtækis og Reval Viking, Reyktal AS en þeir … Halda áfram að lesa Hitti fyrir gamlan kunningja norðarlega í Smugunni
Viðey RE 50 á toginu
Viðey RE 50. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Viðey RE 50 er hér að veiðum á miðunum sunnan við land um helgina en hún er eins og kunnugt er eitt þriggja systurskipa sem HB Grandi lét smíða í Tyrklandi. Viðey RE 50 leysti Ottó N Þorláksson RE 203 af hólmi og svo skemmtilega vill til að … Halda áfram að lesa Viðey RE 50 á toginu
Lómur HF 177
2279. Lómur HF 177 ex Quaqqaliaq. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Rækjufrystitogarinn Lómur HF 177 er hér á toginu um árið á rækjuslóðinni. Togarinn var keyptur frá Grænlandi árið 1997 og kom til landsins í febrúar það ár eins og segir í 3. tbl. Ægis 1997: Nýr rœkjutogari með frystibúnaði, m/s Lómur HF 177, bœttist við flota … Halda áfram að lesa Lómur HF 177









