Sigurbjörg ÓF 1 á toginu

1530. Sigurbjörg ÓF 1. Ljósmynd Þór Jónsson. Sigurbjörg ÓF 1 er hér á toginu um árið en skipið var í eigu Ramma hf. í Fjallabyggð en var seld til Noregs eftir að nýja Sólbergið kom í flotann árið 2017. Sigurbjörg ÓF 1 var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri fyrir Magnús Gamalíelsson hf. á Ólafsfirði árið … Halda áfram að lesa Sigurbjörg ÓF 1 á toginu

Helga María AK 16 á toginu

1868 Helga María AK 16 ex Haraldur Kristjánsson HF 2. Ljósmynd Þór Jónsson. Helga María AK 16, skuttogari í eigu HB Granda hf. er hér á toginu en undanfarnar vikur hefur skipið legið við bryggju. Hvað sem síðar verður. Helga María var smíðuð árið 1988 í Flekkefjord í Noregi. Hún var smíðuð  fyrir Sjólastöðina í Hafnarfirði  … Halda áfram að lesa Helga María AK 16 á toginu

Sóley Sigurjóns nýkominn úr slipp

2262. Sóley Sigurjóns GK 200 ex Sólbakur RE 207. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2019. Sóley Sigurjóns GK 200 hefur verið í skveringu í Reykjavík að undanförnu en kom til Njarðvíkur sl. miðvikudag þar sem verið er að útbúa hana til veiða. Togarinn hét upphaflega Júlíus Havsteen ÞH 1 á íslenskri skipaskrá en er í dag í … Halda áfram að lesa Sóley Sigurjóns nýkominn úr slipp

Þór HF 4

2549. Þór HF 4 ex Karelia. Ljósmynd Þór Jónsson. Frystitogarinn Þór HF 4 á toginu en myndina tók nafni hans Jónsson á Djúpavogi. Stálskip hf. í Hafnarfirði keypti rússneska frystitogaranum Karelia af dótturfélagi Royal Greenland árið 2002. Skipið var byggt í Ørskov Christensens Staalskibsværft A/S í Danmörku árið 1998 og er 1.000 brúttólestir eða 1.500 … Halda áfram að lesa Þór HF 4

Sturlaugur H orðinn Mars RE 13

1585. Sturlaugur H Böðvarsson AK 10 ex Sigurfari II SH 105. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Sturlaugur H Böðvarsson AK 105, áður AK 10, hefur fengið nafnið Mars RE 13 samkvæmt vef Fiskistofu. Morgunblaðið greinir frá því í dag að Útgerðarfélag Reykjavíkur hafi keypt togarann af HB Granda hf. í byrjun febrúar. Sturlaugur H fór sína … Halda áfram að lesa Sturlaugur H orðinn Mars RE 13

Vigri RE 71 að veiðum

2184. Vigri RE 71. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hér birtist frystistogarinn Vigri RE 71 en myndirnar sýna hann að veiðum á Heimsmeistarahrygg í Skerjadýpi sl. fimmtudag. Vigri RE 71 var smíðaður fyrir Ögurvík hf. í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S í Flekkefjord í Noregi árið 1992. Togarinn, sem er 1.217 brl. að stærð, er 66.96 … Halda áfram að lesa Vigri RE 71 að veiðum

Sirrý ÍS 36 að veiðum

2919. Sirrý ÍS 36 ex Stamsund N-11-VV. Ljósmynd Þór Jónsson 2019. Skuttogarinn Sirrý ÍS 36 frá Bolungarvík er hér að veiðum sunnan við land en myndina tók Þór Jónsson skipverji á Ljósafelli SU 70. Sirrý ÍS 36, sem áður hét Stamsund N-11-VV, var keypt frá Noregi og kom inn í flotann í janúar árið 2016. … Halda áfram að lesa Sirrý ÍS 36 að veiðum