Kleifaberg ÓF 2

1360. Kleifaberg ÓF 2 ex Engey RE 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Skuttogarinn Kleifaberg ÓF 2 lætur hér úr höfn í Reykjavík undir lok síðustu aldar en þá var hann gerður út af Ramma hf. og var með heimahöfn á Ólafsfirði.

Kleifaberg RE 70 hét upphaflega Engey RE 1 og var smíðað fyrir Ísfell hf. í Póllandi árið 1974. Togarinn var 742 brl. að stærð en mælist í dag 839 brl. enda búið að toga hann dálítið.

Rammi hf. keypti togarann af HB Granda árið 1997 og nefndi hann Kleifaberg ÓF 2. Árið 2007 kaupir Brim hf. togarann sem var áfram með sama nafn, einkennisstafi og númer til ársins 2012.

Þá komst hann í eigu Útgerðarfélags Reykjavíkur og verður RE 7. Þetta var í janúar en í lok sama árs varð hann RE 70.

Árið 2021 er togarinn kominn í eigu Skipaþjónustu Íslands ehf. og fær nafnið Mars RE 70. Hann fór í brotajárn árið 2025.

Haukur Sigtryggur sendi miða:

1360….Engey RE 1… TF-AC.
IMO: 7329297.
MMSI: 251153000.

Skipasmíðastöð: Stocznia Im Komuny. Gdynia. Póllandi. 1974.
Kom nýr til Reykjavíkur 10.03.1974.
1976 = Brúttó: 742. U-þilfari: 520. Nettó: 241.
Lengd: 60,45. Breidd: 11,32. Dýpt: 6,21.

Smíðanúmer. B425/201.
Breitt í frysti 1995. Lengt 1982.
Mótor 1974 Zgoda-Sulzer 2207 kw. 3000 hö.

Engey RE 1. Útg: Ísfell h.f. Reykjavík. (1974 – 1985).
Engey RE 1. Útg: Hraðfrystistöðin í Reykjavík h.f. Rey. (1985 – 1995).
Engey RE 1. Útg: Grandi h.f. Reykjavík. (1995 – 1998).

Kleifaberg ÓF 2. Útg: Þormóður rammi – Sæberg h.f. (1998 – 2006).
Kleifaberg ÓF 2. Útg: Rammi h.f. Siglufirði. (2007 – 2008).
Kleifaberg ÓF 2. Útg: Brim h.f. Reykjavík. (2008 – 2011).

Kleifaberg RE 7. Útg: Brim h.f. Reykjavík. (2011 – 2014).
Kleifaberg RE 70. Útg: Brim h.f. Reykjavík. (2014 – 2018).
Kleifaberg RE 70. Útg: Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. Rey. (2018 – 2021).

Mars RE 70. Útg: Skipaþjónusta Íslands Ehf. Reykjavík. (2021 – 2025).
Fer í brotajárn – Herkúles dregur hann, leggur á stað 28.07.2025.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd