Klakkur VE 103

1472. Klakkur VE 103. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson.

Klakkur VE 103 kom hann nýr til Vestmannaeyja þann 23. mars árið 1977 en eigandi togarans, sem mældist 488 brl. að stærð, var Klakkur hf. í Vestmannaeyjum.

Síðar gerði Samtog ofl. hann út frá Eyjum.

Klakkur var smíðaður í Gdynia í Póllandi hjá Stocznia im Komuny Paryskiey (nýsmíði B 402/2) og var síðasti skuttogarinn í raðsmíði þriggja togara fyrir íslenska aðila hjá umræddri stöð. Fyrr sama ár komu til landsins skuttogararnir Ólafur Jónsson GK GK 404 og Bjarni Herjólfsson ÁR 200.

Klakkur VE 103 var seldur til Grundarfjarðar vorið 1992 en þá var hann í eigu Vinnslustöðvarinnar. Kaupandinn var Hraðfrystihús Grundarfjarðar hf. og kom Klakkur í staðinn fyrir Krossnes SH 308 sem fórst á Halamiðum í febrúar sama ár.

Hraðfrystihús Grundarfjarðar hf. var síðar sameinað Fiskiðjunni Skagfirðingi hf. sem heitir FISK Seafood í dag. Klakkur var SH 510 til ársins 2011 er hann var SK 5. Hann var seldur Sólbergi ehf. á Ísafirði árið 2018 og fékk hann nafnið Ísborg II ÍS 260

Tjaldtangi ehf. á Ísafirði keypti togarann árið 2019 og fékk hann sitt fyrra nafn, Klakkur, og varð ÍS 903.

Skipið var afskráð af skipaskrá í nóvember 2023 og selt í brotajárn

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd