2962. Vörður ÞH 44. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Vörður ÞH 44 kom með fullfermi til Grindavíkur í gær en hann var að veiðum á Vestfjarðarmiðum. Jón Steinar tók þessa myndasyrpu af Verði koma til hafnar. 2962. Vörður ÞH 44. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson 2021. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða … Halda áfram að lesa Vörður ÞH 44
Flokkur: Togarar
Guðmundur í Nesi RE 13
2626. Guðmundur í Nesi RE 13. Ljósmynd Magnús Jónsson 2021. Guðmundur í Nesi RE 13 kom til hafnar í Reykjavík í gær og signalinn kominn upp í tilefni Sjómannadagsins. Guðmundur í Nesi var smíðaður í Noregi árið 2000, en Útgerðarfélag Reykjavíkur keypti skipið 2004 og gerði út til loka árs 2018. Þá var skipið var selt … Halda áfram að lesa Guðmundur í Nesi RE 13
Bergur VE 44
2677. Bergur VE 44 ex Brodd 1. Ljósmynd Þór Jónsson 2021. Þór Jónson tók þessa mynd um sl. helgi á Stokksnesgrunni en hann er skipverji á Ljósafelli SU 70 sem var þar að veiðum. Þá sigldi hjá Bergur VE 44 sem var á austurleið en hann var smíðaður hjá Karstensens Skibsværft í Skagen í Danmörku … Halda áfram að lesa Bergur VE 44
Bessi í flotkví í Hafnarfirði
2013. Bessi ÍS 410. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Bessi ÍS 410 var smíðaður hjá Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S, í Flekkefjord í Noregi og hafði smíðanúmer 144 hjá stöðnni. Hann var smíðaður fyrir Álftfirðing h.f í Súðavík og leysti af hólmi eldra skip með sama nafni. Bessi var 807 brl. að stærð. Bessi ÍS 410 var … Halda áfram að lesa Bessi í flotkví í Hafnarfirði
Tómas Þorvaldsson að veiðum
2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex Sisimiut GR 6-500. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2021. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir af frystitogaranum Tómasi Þorvaldssyni GK 10 þar sem hann var að veiðum sunnan við Eyjar um páskana. Togarinn var smíðaður í Noregi árið 1992 fyrir Skagstrending hf. á Skagaströnd og hét þá Arnar HU 1. Arnar var seldur … Halda áfram að lesa Tómas Þorvaldsson að veiðum
Klakkur og Óli á Stað
1472. Klakkur ÍS 903 og 2842. Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Vigfús Markússon 2020. Á þessari mynd Vigfúsar Markússonar sem hann tók á Siglufirði gefur að líta línubátinn ÓIla á Stað GK 99 kom að landi um leið og rækjutogarinn Klakkur ÍS 903 heldur til veiða. Skemmtileg mynd þetta finns mér. Með því að … Halda áfram að lesa Klakkur og Óli á Stað
Ljósafell SU 70 – Myndasyrpa
Ljósafell SU 70. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2021. Hólmgeir Austfjörð tók þessa myndasyrpu af Ljósafelli SU 70 í gær er togarinn var við Vestmannaeyjar. Ljósafell SU 70. Ljósmyndir Hólmgeir Austfjörð 2021. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher … Halda áfram að lesa Ljósafell SU 70 – Myndasyrpa
Ljósafellið með fullfermi til Þorlákshafnar
1277. Ljósafell SU 70. Ljósmynd Jón Steinar 2021. Togarinn Ljósafell SU 70 frá Fáskrúðsfirði kom til hafnar í Þorlákshöfn í dag með fullfermi sem gerir rúm 330 kör. Uppstaða aflans var ufsi sem fékkst á svokölluðum Heimsmeistarahrygg og þar í kring á um það bil fjórum dögum. Jón Steinar tók þessar myndir en Ljósafell SU … Halda áfram að lesa Ljósafellið með fullfermi til Þorlákshafnar
Stakfell frá Þórshöfn
1609. Stakfell ÞH 360. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þórshafnartogarinn Stakfell ÞH 360 er hér við bryggju á Húsavík en komur þess til Húsavíkur voru ekki tíðar ef ég man rétt. Stakfellið er 50,75 metrar að lengd og 10,30 metrar að breidd og mældist 471 brl. að stærð. í því var, og er kannski enn, 2200 hestafla … Halda áfram að lesa Stakfell frá Þórshöfn
Í vari inn á Stakksfirði
Polar Amaroq og Hákon EA 148 á Stakksfirði í dag. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Jón Steinar myndaði nokkur skip inni á Stakksfirðinum í dag þar þar sem þau lágu í vari fyrir veðrinu. Þarna mátti kenna Tómas Þorvaldsson GK 10, Valdimar GK 195, Hákon EA 148 og Polar Amaroq. Skip í vari á Stakksfirði … Halda áfram að lesa Í vari inn á Stakksfirði









