Viking 1 á veiðum við Óman

IMO 9212357. Viking 1 ex Hákon EA 148. Ljósmynd Guðvarður Jónsson 2026. Nóta- og togskipið Viking 1 er á þessum myndum Guðvarðs Jónssonar að veiðum við Óman en eins og glöggir menn sjá er þetta fyrrum Hákon EA 148. Skipið var selt til Óman í fyrra og eftir nokkurra mánaða klössun hjá Slippstöðinni á Akureyri lét það … Halda áfram að lesa Viking 1 á veiðum við Óman

Hoffell SU 80

3035. Hoffell SU 80 ex Asbjörn HG 265. Ljósmynd Sigdór Jósefsson 2026. Sigdór Jósefsson skipverji á Svaninum RE 45 sendi mér þessar myndir sem hann tók af Hoffelli SU 80 á loðnimiðunum. Loðnuvinnslan hf. keypti skipið frá Danmörku sumarið 2022 en þar hét það Asbjörn HG 265 og þar áður Gitte Henning. 3035. Hoffell SU 80 ex Asbjörn … Halda áfram að lesa Hoffell SU 80

Jawhart Al Wusta

IMO: 9256664. Jawhart Al Wusta ex Juvel.Ljósmynd Guðvarður Jónsson 2026. Guðvarður Jónsson sendi mér þessar myndir af Ómanska togararnum Jawhart Al Wusta í morgun en þar um borð er skipstjóri frændi minn Sigurgeir Pétursson. Togarinn, sem er um hundrað metrar að lengd, hét áður Juvel, smíðaður árið 2003 og var með heimahöfn í Álasundi í … Halda áfram að lesa Jawhart Al Wusta

Kolbeinsey ÞH 10

1576. Kolbeinsey ÞH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Kolbeinsey ÞH 10 er hér að leggja upp í veiðiferð frá Húsavík um árið en hún var gerð út frá Húsavík árin 1981 til 1997. Kolbeinsey var smíðuð hjá Slippstöðinni á Akureyri og var henni gefið nafn og hún sjósett þann 7. febrúar 1981. Til heimahafnar kom Kolbeinsey 10. maí sama ár. … Halda áfram að lesa Kolbeinsey ÞH 10