Ferskur og Skarpur

6629. Ferskur BA 103 ex Stormur BA 198. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Sómabátarnir Ferskur BA 103 og Skarpur BA 373 róa til strandveiða frá Tálknafirði sem er þeirra heimahöfn og voru myndirnar teknar fyrr í mánuðinum. Ferskur BA 103 var smíðaður í Bátasmiðju Guðmundar árið 1985 og hét upphaflega Inga HF 200 en hefur borið … Halda áfram að lesa Ferskur og Skarpur →

Ólafur Magnússon HU 54

2183. Ólafur Magnússon HU 54 ex Halla Sæm SF 23. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Jón Steinar tók þessar myndir í gær af handfærabátnum Ólafi Magnússyni HU 54 þar sem hann var að veiðum rétt innan við Kálfshamarsvík við Húnaflóa. Báturinn var smíðaður fyrir Þórólf hf. á Hornafirði hjá Mótun í Hafnarfirði árið 1992, hét hann … Halda áfram að lesa Ólafur Magnússon HU 54 →

Kristborg SH 108

2441. Kristborg SH 108 ex Tindaröst BA 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Kristborg SH 108 hét upphaflega Tindaröst BA 15 og var smíðuð í Bátasmiðju Guðmundar árið 2000 fyrir Davíð Páll Bredesen á Patreksfirði. Þar voru þessar myndir teknar á dögunum en Kristborg, sem er Sómi 870, er á strandveiðum. Árið 2005 var Tindaröst seld … Halda áfram að lesa Kristborg SH 108 →

Sæljómi BA 59

2050. Sæljómi BA 59 ex Sæljómi GK 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Sæljómi BA 59 kemur hér til hafnar á Patreksfirði í vikunni en báturinn er gerður út af Látraröst ehf. á Patreksfirði. Báturinn var smíðaður í Þrándheimi í Noregi árið 1989 fyrir Sæljóma hf. í Sandgerði. Hann bar fyrst nafnið Sæljómi II GK 155. … Halda áfram að lesa Sæljómi BA 59 →

Njörður BA 114

2432. Njörður BA 114. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Njörður BA 114 kemur hér að landi á Tálknafirði í vikunni en hann rær til handfæraveiða um þessar mundir. Trefjar í Hafnarfirði smíðuðu bátinn, sem upphaflega er af gerðinni Cleopatra 28, fyrir Njörð ehf. á Tálknafirði og afhentu árið 2000. Eins og sjá má hefur verið byggt … Halda áfram að lesa Njörður BA 114 →