2822. Særif SH 25 ex Hálfdán Einarsson ÍS 128. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Línubáturinn Særif SH 25 kom til hafnar í Sandgerði sl. föstudag og þá voru þessar myndir teknar af bátnum. Særif SH 25 hét upphaflega Hrólfur Einarsson ÍS 255 og var í eigu Völusteins ehf. í Bolungarvík. Hrólfur Einarsson ÍS 255 var smíðaður árið … Halda áfram að lesa Særif kemur að landi í Sandgerði
Flokkur: Smábátar
Kristján HF 100 kemur að landi
2961. Kristján HF 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Línubáturinn Kristján HF 100 kemur hér að landi í Grindavík í sl. föstudagskvöld en hann er gerður út af Fiskvinnslunni Kambi hf. í Hafnarfirði. Kristján HF 100 er yfirbyggður Cleopatra 46B beitningavélarbátur frá Trefjum sem var afhentur sumarið 2018. Báturinn er 14 metrar að lengd og mælist … Halda áfram að lesa Kristján HF 100 kemur að landi
Hópsnes GK 77
2457. Hópsnes GK 77 ex Katrín SH 575. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Línubáturinn Hópsnes GK 77 var sjósett í gær eftir skveringu í Skipasmíðastöð Njarðvíkur og voru þessar myndir teknar þá. Fyrst fór báturinn inn í Keflavíkurhöfn en sigldi til Grindavíkur síðar um daginn og va stefnt að róðri í gærkveldi. Ekki er langt síðan … Halda áfram að lesa Hópsnes GK 77
Bergvík GK 22 kemur að landi í Keflavík
2617. Bergvík GK 22 ex Daðey GK 707. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Bergvík KE 22 kemur hér að landi í Keflavík í dag en báturinn er gerður út af GunGum ehf. til netaveiða. Bergvík var smíðuð hjá Mótun ehf í Njarðvík 2004 og hét upphaflega Daðey GK 777. Báturinn var yfirbyggður línubátur en þegar GunGum … Halda áfram að lesa Bergvík GK 22 kemur að landi í Keflavík
Margrét GK 33 kemur að landi
2933. Margrét GK 33. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Línubáturinn Margrét GK 33 kemur hér að landi í Sandgerði í gærkveldi og Sigurfari fylgir í humátt á eftir. Það er Nesfiskur ehf. sem gerir bátinn út en hann var smíðaður hjá Víkingbátum árið 2019. Margrét GK 33 er tæplega 22 BT að stærð en lengd hennar … Halda áfram að lesa Margrét GK 33 kemur að landi
Hópsnes GK 77
2457. Hópsnes GK 77 ex Katrín SH 575. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2021. Línubáturinn Hópsnes GK 77, sem er hér að koma inn til hafnar í Sandgerði, hét upphaflega Katrín RE 375. Katrín var smíðuð árið 2000 hjá Bátagerðinni Samtak fyrir Rafn ehf. í Reykjavík. Sumarið 2006 varð báturinn SH 575 og heimahöfn Ólafsvík. Hann var … Halda áfram að lesa Hópsnes GK 77
Laxinn, nýr strandveiðbátur í flota Húsvíkinga
5920. Laxinn GK 177 ex Laxinn ÍS 109. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Laxinn GK 177 kom til Húsavíkur í dag en nýr eigandi hans, Reynir Hilmarsson, sigldi honum frá Akureyri í sunnanvindi. Laxinn, sem er strandveiðibátur, var smíðaður árið 1978 í Mótun og af þeirri gerð báta sem kölluðust Færeyingar. Það ku vera mjög lítið … Halda áfram að lesa Laxinn, nýr strandveiðbátur í flota Húsvíkinga
Siggi á Bakka SH 228
2951. Siggi á Bakka SH 228 ex Gunna Beta ST 60. Ljósmynd Alfons Finnsson 2021. Siggi á Bakka SH 228 kom til hafnar í Ólafsvík í gær en hann er í eigu K. Sigurðssonar ehf. með heimahöfn á Arnarstapa. Báturinn hét áður Gunna Beta ST 60 með heimahöfn á Norðurfirði en K. Sigurðsson ehf. keypti … Halda áfram að lesa Siggi á Bakka SH 228
Grásleppubáturinn Sóley ÞH 28
7382. Sóley ÞH 28 ex Íshildur SH 160. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Grásleppubáturinn Sóley ÞH 28 kom að landi á Húsavík um kaffileytið í dag og voru þessar myndir teknar þá. Sóley ÞH 28 hét upphaflega Gnoð HF 25 og var smíðuð árið 1993 fyrir Jón Gíslason Hafnarfirði í Bátasmiðju Guðmundar ehf. í Hafnarfirði. Árið … Halda áfram að lesa Grásleppubáturinn Sóley ÞH 28
Ásdís ÞH 136 – Myndasyrpa
2783. Ásdís ÞH 136 ex Ingunn Sveinsdóttir AK 91. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Í þessari myndasyrpu gefur að líta grásleppubátinn Ásdísi ÞH 136 frá Húsavík þar sem hún er á heimstími í veðurblíðunni í dag. Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni er það Barmur ehf. sem gerir hana út en báturinn er … Halda áfram að lesa Ásdís ÞH 136 – Myndasyrpa









