Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Ljósmynd Samherji.is 2020. Nýr Vilhelm Þorsteinsson EA var sjósettur hjá skipasmíðastöðinni Karstensens Skibsværft í Gdynia í Póllandi hinn 12. júní síðastliðinn. Skrokkurinn var tilbúinn til sjósetningar fyrir átta vikum en vegna Covid-19 heimsfaraldursins var ekki að ráðist í hana fyrr en nú. Á heimasíðu Samherja segir að skipið muni leysa af … Halda áfram að lesa Nýr Vilhelm sjósettur í Gdynia
Flokkur: Nóta- og togskip
Guðmundur Ólafur ÓF 91
2329. Guðmundur Ólafur ÓF 91 ex Sveinn Benediktsson SU 77. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson Guðmundur Ólafur ÓF 91 hét áður Sveinn Benediktsson SU 77 og var keyptur til landsins af SR Mjöl hf. árið 1999. Skipið var smíðað í Noregi árið 1990 og er 56 metra langt og 11 metra breitt, alls 1.230 brúttólestir. Hét upphaflega … Halda áfram að lesa Guðmundur Ólafur ÓF 91
Súlan EA 300 á Skjálfanda
1060.Súlan EA 300. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér er Súlan EA 300 á leið inn Skjálfandann um árið en hún lagði upp hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur. Var að mig minnir á fiskitrolli en sennilega á rækju yfir sumarið. Súlan var 354 brl. að stærð, smíðuð í Fredrikstad í Noregi 1967 fyrir Leó Sigurðsson á Akureyri. Hún var lengd … Halda áfram að lesa Súlan EA 300 á Skjálfanda
Þórður Jónasson EA 350 kemur að landi í Krossanesi
264. Þórður Jónasson EA 350 ex Þórður Jónasson RE 350. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessar myndir sem hér birtast voru teknar um árið og sýna loðnuskipið Þórð Jónasson EA 350 koma drekkhlaðið að bryggju í Krossanesi við Eyjafjörð. Þórður Jónasson EA 350, sem í dag ber nafnið Hörður Björnsson ÞH 260 og er gert út á … Halda áfram að lesa Þórður Jónasson EA 350 kemur að landi í Krossanesi
Jón Finnsson RE 506
1742. Jón Finnsson RE 506. Ljósmynd Sigfús Jónsson. Jón Finnsson RE 506 sem hér sést var smíðaður smíðaður í Shiprepair Yard Gryfia í Stettin í Póllandi árið 1987 fyrir Gísla Jóhannesson útgerðarmann. Kom hann í stað eldra skips með sama nafni sem selt var til Chile árið 1985. 1995 keypti Ljósavík hf. í Þorlákshöfn skipið … Halda áfram að lesa Jón Finnsson RE 506
Björg Jónsdóttir ÞH 321
1508. Björg Jónsdóttir ÞH 321 Höfðavík AK 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1996. Þessar myndir sem nú birtast voru teknar í apríl 1996 þegar ný Björg Jónsdóttir ÞH 321 kom til heimahafnar í fyrsta skipti. Þetta var sú sjötta í röðinni ef rétt er munað. Þriðjudaginn 23. apríl 1996 birtist eftirfarandi frétt í Degi og til … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir ÞH 321
Arney KE 50 á siglingu
1416. Arney KE 50 ex Ásborg EA 259. Ljósmynd Pétur Helgi Pétursson. Arney KE 50 sem hér sést á siglingu hét upphaflega Skarðsvík SH 205 og var í eigu samnefnds fyrirtæki á Hellisandi. Skarðsvík SH 205 var smíðuð árið 1975 hjá Baatservice Verft A/S í Mandal í Noregi, hún hafði smíðanúmer 620. Hún var fjórða … Halda áfram að lesa Arney KE 50 á siglingu
Hákon kom til Vestmannaeyja í dag
2407. Hákon EA 148. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Uppsjávarveiðiskipið Hákon EA 148 kom til hafnar í Vestmannaeyjum í dag og tók Hólmgeir Austfjörð þessar myndir af skipinu. Hákon EA 148 var smíðaður fyrir Gjögur hf. í Asmarskipasmíðastöðina í Talcahuano í Chile og kom til landsins 10. ágúst 2001. Hákon EA 148 er 65,95 metrar að … Halda áfram að lesa Hákon kom til Vestmannaeyja í dag
Einum of mikið af því góða
2900. Beitir NK 123 ex Gitte Henning S 349. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019 Eins og kom fram á síðunni var Beitir NK 123 við veiðar á síldarmiðunum austur af landinu í gær. Flottrollið var látið fara um hádegi í gær og var það dregið í um 40 mínútur og reyndist aflinn vera 1.320 tonn. Sturla Þórðarson skipstjóri … Halda áfram að lesa Einum of mikið af því góða
Beitir NK 123 dælir síld um borð
2900. Beitir NK 123 ex Gitte Henning S 349. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Beitir NK 123, skip Síldarvinnslunnar í Neskaupsstað, er hér að síldveiðum í dag, nánar tiltekið á Glettingarnesgrunni. Beitir hét áður Gitte Henning S 349 og var smíðaður í skipasmíðastöðinni Western Baltija Shipbuilding í Litháen en kom nýr til Danmerkur í apríl 2014. Beitir NK 123 … Halda áfram að lesa Beitir NK 123 dælir síld um borð









