108. Húni II ex Sigurður Lárusson SF 114. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010. Húni II lætur hér úr höfn á Húsavik 16. júní árið 2010. Húni II var smíðaður í skipasmíðastöð KEA á Akureyri árið 1963 og hét upphaflega Húni II HU 2 frá Höfðakaupstað. Tryggvi Gunnarsson, skipasmíðameistari, teiknaði Húna II. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Húni II
Flokkur: Hvalaskoðunarbátar
Sylvía sumarið 2007
1468. Sylvía ex Björgvin ÍS 468. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Þessar myndir sem nú birtast af hvalaskoðunarbátnum Sylvíu tók ég 19. júlí árið 2007. Sylvía var smíðuð í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri 1976 fyrir Grenvíkinga og hét upphaflega Sigrún ÞH 169. Í sumarbyrjun 2007 kaupir hvalaskoðunarfyrirtækið Gentle Giants á Húsavík bátinn frá Þingeyri og … Halda áfram að lesa Sylvía sumarið 2007
Donna Wood í Øfjord
Donna Wood. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Donna Wood siglir hér út Øfjord í Scoresby sem umlukinn er háum fjöllum á báða vegu. Hæsti tindurinn 1800 metrar minnir mig. Fékk upplýsingar um að fjallið Grundvigskirken er 1882 metrar en lengra frá sjó eru þrír tindar yfir 2000 metrar, sá hæsti 2220 metrar. Donna Wood. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. … Halda áfram að lesa Donna Wood í Øfjord
Jólalegt við Húsavíkurhöfn
Húsavík að kveldi 5. desember. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Það var jólalegt um að litast við Húsavíkurhöfn í vikunni þegar seríurnar voru komnar upp á bátum Gentle Giants þar sem þeir liggja við flotbryggju. Við Húsavíkurhöfn að kveldi 5. desember 2018. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær … Halda áfram að lesa Jólalegt við Húsavíkurhöfn
Bjössi Sör í slipp
1417. Bjössi Sör ex Breiðdælingur SU 62. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Tók þessa mynd í kvöld af hvalaskoðunarbátnum Bjössa Sör prýddum jólaljósum í slippnum á Húsavík Bjössi Sör hefur verið í vélarskiptum undanfarið en hann var ekki í notkun á síðustu hvalaskoðunarvertíð Norðursiglingar. Á bak við hann í dráttarbrautinni er skonnortan Haukur. Með því að … Halda áfram að lesa Bjössi Sör í slipp
Skonnortan Ópal
2851. Ópal. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Hér er skonnortan Ópal við borgarísjaka í Scoresbysundi á Grænlandi haustið 2017. Skipið var smíðað af skipasmíðastöðinni Bodenwerft í Damgarten, Þýskalandi árið 1951 sem togari og var við veiðar á Eystrarsalti, í Norðursjó og Barentshafi. Á 8 árum (1973-1981) var Opal breytt í þá glæsilegu tveggja mastra skonnortu sem hún … Halda áfram að lesa Skonnortan Ópal





