
Hér er skonnortan Ópal við borgarísjaka í Scoresbysundi á Grænlandi haustið 2017. Skipið var smíðað af skipasmíðastöðinni Bodenwerft í Damgarten, Þýskalandi árið 1951 sem togari og var við veiðar á Eystrarsalti, í Norðursjó og Barentshafi. Á 8 árum (1973-1981) var Opal breytt í þá glæsilegu tveggja mastra skonnortu sem hún er í dag. Skipið hefur siglt um allan heim, t.d. siglt yfir Atlantshaf nokkrum sinnum og alltaf einstaklega vel viðhaldið. Opal var í eigu sömu aðila allt frá endurbyggingu til ársins 2013 er hún bættist við flota Norðursiglingar á Húsavík.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri upplausn.