Bátar í slipp á Nýársdegi

Bátar í slipp á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Nýársmynd sem tekin var við slippinn á Húsavík eftir hádegi í dag en þar eru uppi tveir af bátum Norðursiglingar. Þetta eru Náttfari, smíðaður í Stykkishólmi árið 1965 og Sæborg, smíðuð á Akureyri árið 1977. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana … Halda áfram að lesa Bátar í slipp á Nýársdegi →

Sylvía ljósum prýdd

1468. Sylvía ex Björgvin ÍS 468. Ljómynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Hérna liggur Sylvía ljósum prýdd í Húsavíkurhöfn en hún er í eigu Gentle Giants sem einnig á Fald ásamt flota Ömmubáta af RIB gerð. Sylvía var smíðuð í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri 1976 fyrir Grenvíkinga og hét upphaflega Sigrún ÞH 169. Með því að … Halda áfram að lesa Sylvía ljósum prýdd →

Whales EA 200 kemur að landi

500. Whales EA 200 ex Gunnar Hámundarson GK 357. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Hvalaskoðunarbáturinn Whales EA 200 kemur hér að landi á Hauganesi í byrjun vikunnar. Báturinn, sem er 53 brl. að stærð, hét upphaflega Gunnar Hámundarson GK 357 og var smíðaður árið 1954 í Ytri Njarðvík. Hann var með smíðanúmer 1 hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur. … Halda áfram að lesa Whales EA 200 kemur að landi →

Whales EA 200 við bryggju á Hauganesi

500. Whales EA 200 ex Gunnar Hámundarson GK 357. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Hvalaskoðunarbáturinn Whales EA 200 liggur hér við flotbryggjuna á Hauganesi í gær og einnig má sjá Níels Jónsson EA 106. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view … Halda áfram að lesa Whales EA 200 við bryggju á Hauganesi →

Náttfari ljósum prýddur

993. Náttfari ex Byrefjell. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Þeim fjölgar bátunum í Húsavíkurhöfn sem prýðast jólaljósum og í dag kom serían upp á Náttfara. Náttfari var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1965 og hét upphaflega Þróttur SH 4.  Þróttur, sem var fyrsti báturinn sem Skipavík smíðaði, hét ýmsum nöfnum í gegnum tíðina en Norðursigling … Halda áfram að lesa Náttfari ljósum prýddur →

Jólaljósin komin upp á Faldinum

1267. Faldur ex Faldur ÞH 153. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Jólaljósin eru komin upp á hvalaskoðunarbátnum Faldi þar sem hann liggur í Húsavíkurhöfn. Það var því skundað niður á stétt núna á sjötta tímanum og teknar nokkrar myndir og hér er ein þeirra. Faldur hét upphaflega Votaberg ÞH 153 og var smíðaður hjá Skipaviðgerðum hf. … Halda áfram að lesa Jólaljósin komin upp á Faldinum →

Salka og Fanney komnar í jólabúninginn

1470. Salka og 1445. fanney við bryggju á Húsavík í kvöld. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þrátt fyrir að enn séu 30 dagar, 20 klukkustundir, 22 mínútur og 10 sekúndur til jóla (þegar þetta er skrifað) eru hvalaskoðunarbátarnir Salka og Fanney komnar í jólabúninginn. Ef síðuritara skjöplast ekki er það einum 4-5 dögum fyrr en á síðsta … Halda áfram að lesa Salka og Fanney komnar í jólabúninginn →

Garðar kemur að bryggju í dag

260. Garðar ex Sveinbjörn Jakobsson SH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hvalaskoðunarbáturinn Garðar kemur hér að bryggju í haustblíðunni í dag. Upphaflega og lengst af Sveinbjörn Jakobsson SH 10 frá Ólafsvík. Smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Dverg hf. í Esbjerg í Danmörku árið 1964. Norðursigling ehf. á Húsavík keypti bátinn haustið 2006 og gerði upp til siglinga … Halda áfram að lesa Garðar kemur að bryggju í dag →

Hildur, Andvari og Sæborg

1354. Hildur ex Héðinn HF 28. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hildur var byggð á Akureyri árið 1974 á Bátaverkstæði Gunnlauga og Trausta. Hét upphaflega Múli ÓF 5.  Norðursigling keypti bátinn síðla sumars 2009 og um haustið var henni siglt til Engernsund í Danmörku. Þar var henni breytt í tveggja mastra skonnortu með bugspjóti. Hildur kom aftur … Halda áfram að lesa Hildur, Andvari og Sæborg →