Skógafoss við Bökugarðinn

IMO 9375252.. Skógafoss ex Ice Bird. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Skógafoss kom til Húsavíkur snemma í morgun og þurfti Virginiaborg að fara frá á meðan fossinn er losaður og lestaður. Skógafoss var smíðaður árið 2007 og hét Ice Bird til ársins 2011. Hann er 130 metrar að lengd og 20,6 metra breiður. Mælist 7.545 GT … Halda áfram að lesa Skógafoss við Bökugarðinn

Virginiaborg við Bökugarðinn

IMO 9234290. Virginiaborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Flutningaskipið Virginiaborg kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarði þar sem verið er að skipa upp hráefnisfarmi fyrir PCC á Bakka. Virginiaborg var smíðað árið 2001 og er 6.361 GT að stærð. Lengd þess er 132 metrar og breiddin 16 metrar. Skipið, sem hefur komið áður … Halda áfram að lesa Virginiaborg við Bökugarðinn

Loireborg á Húsavík

IMO 9399404. Loireborg við Bökugarðinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Flutningaskipið Loireborg kom til Húsavíkur í nótt með hráefnisfarm til kísilvers PCC á Bakka.  Skipið er 4,695 GT að stærð og var smíðað árið 2008. Lengd þess er 123 metrar og breiddin 14 metrar. Skipið siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Delfzijl. Með því að … Halda áfram að lesa Loireborg á Húsavík

Mariejte Nora við Bökugarðinn

IMO:9481609. Marietje Nora. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Flutningaskipið Marietje Nora kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum hvar nú er verið að skipa upp hráefnisfarmi til kísilvers PCC á Bakka. Marietje Nora siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Delfzijl. Skipið er er 3,956 GT að stærð og var smíðað árið 2015. Lengd … Halda áfram að lesa Mariejte Nora við Bökugarðinn

Gannet Bulkner siglir á Eyrarsundi

IMO 9441300. Gannet Bulker. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hér siglir Gannet Bulker, rúmlega 33 þúsund tonna skip, fram hjá Drageyri (Dragør) um kaffileytið í dag. Skipið er nú komið út á Eystrasaltið með áfangastað í Rússlandi. Það var smíðað árið 2010 og siglir undir fána Marshalleyja með heimahöfn í Maujro. Gannet Bulker er 190 metra … Halda áfram að lesa Gannet Bulkner siglir á Eyrarsundi

Lauwersborg kom í morgun

IMO 9399387. Lauwersborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Lauwersborg kom til Húsavíkur í morgun með hráefnisfarm til kísilvers PCC á Bakka.  Lauwersborg, sem kom hingað einnig í byrjun nóvember, er 4,695 GT að stærð og var smíðað árið 2007. Lengd þess er 123 metrar og breiddin 14 metrar. Skipið siglir undir hollenskum fána með heimahöfn … Halda áfram að lesa Lauwersborg kom í morgun

Doggerbank á Skjálfanda

IMO 9341768. Doggersbank ex Jaguar. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Doggersbank siglir hér út Skjálfandaflóa í gær eftir að hafa losað hráefnisfarm til PCC á Bakka. Það birtist kvöldmynd af skipinu við Bökugarðinn hér á síðunni í fyrradag og með henni þessar upplýsingar: Doggerbanks siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Delfzijl. Skipið er er … Halda áfram að lesa Doggerbank á Skjálfanda

Doggersbank við Bökugarðinn

IMO 9341768. Doggersbank ex Jaguar. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hollenska flutningaskipið Doggersbank kom til Húsavíkur á áttunda tímanum í morgun og lagðist að Bökugarðinum. Þar er nú verið að skipa upp hráefnisfarmi til kísilvers PCC á Bakka en myndin af skipinu var tekin síðdegis í dag.  Doggerbanks siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Delfzijl. … Halda áfram að lesa Doggersbank við Bökugarðinn

Eemshorn við Bökugarðinn

IMO 9393278. Eemshorn við Bökugarðinn í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Flutningaskipið Eemshorn kom til Húsavíkur snemma í morgun og lagðist að Bökugarðinum en skipið er með hráefnisfarmi til kísilvers PCC á Bakka.  Eemshorn er 3,990 GT að stærð og var smíðað árið 2008. Lengd þess er 111 metrar og breiddin 14 metrar. Skipið siglir undir … Halda áfram að lesa Eemshorn við Bökugarðinn

Ebroborg við Bökugarðinn í morgun

IMO 9463451. Ebroborg við Bökugarðinn í morgun. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Flutningaskipið Ebroborg kom upp að Bökugarðinum í morgun eftir að hafa beðið síðan í gær eftir því að kompanískipið Lauwersborg færi frá. Ebroborg er með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Skipið 7,196 GT að stærð og var smíðað árið 2010. Lengd þess er 138 … Halda áfram að lesa Ebroborg við Bökugarðinn í morgun