Ebroborg við Bökugarðinn í morgun

IMO 9463451. Ebroborg við Bökugarðinn í morgun. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Flutningaskipið Ebroborg kom upp að Bökugarðinum í morgun eftir að hafa beðið síðan í gær eftir því að kompanískipið Lauwersborg færi frá. Ebroborg er með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Skipið 7,196 GT að stærð og var smíðað árið 2010. Lengd þess er 138 … Halda áfram að lesa Ebroborg við Bökugarðinn í morgun →

Lauwersborg kom í dag

IMO 9399387. Lauwersborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hollenska flutningaskipið Lauwersborg kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum hvar nú er verið að skipa upp hráefnisfarmi til kísilvers PCC á Bakka.  Lauwersborg er 4,695 GT að stærð og var smíðað árið 2007. Lengd þess er 123 metrar og breiddin 14 metrar. Skipið siglir undir … Halda áfram að lesa Lauwersborg kom í dag →

Síðdegisól og brim við Skjálfanda

IMO 9350771. Fembria á Skjálfanda í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það var brim við Skjálfanda í dag og síðdegissólin skein þegar þessi mynd var tekin út á Bakkahöfða. Flutningaskip liggur þarna á flóanum en það kom með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka og kemur upp að þegar róast. Með því að smella á myndina er … Halda áfram að lesa Síðdegisól og brim við Skjálfanda →

Fembria á Skjálfanda

IMO 9350771. Fembria á Skjálfanda í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Flutningaskipið Fembria liggur framundan Húsavíkurhöfða þessa stundina en það er að koma með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Fembria siglir undir fána eyjunnar Mön á Írlandshafi og með heimahöfn í Douglas höfuðstað eyjunnar. Skipið er 117 metrar að lengd og breidd þess er 17 metrar. … Halda áfram að lesa Fembria á Skjálfanda →

Rurik kom með farm fyrir PCC

IMO 9375795. Rurik ex Rorichmoor. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Rurik kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum en skipið er með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Rurik siglir undir fána Antiqua og Barbadoseyja. Heimahöfn skipsins, sem smíðað var 2006, er Saint John’s. Skipið er 80 metra langt og 12 metra breitt. Það … Halda áfram að lesa Rurik kom með farm fyrir PCC →

Wilson Nice kom með trjáboli

IMO 9430959. Wilson Nice. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Wilson Nice liggur nú við Bökugarðinn á Húsavík  þar sem uppskipun á trjáboli fyrir PCC á Bakka fer fram. Wilson Nice er 123 metra langt og 17 metra breitt, smíðað árið 2010. Það mælist 6,118 GT að stærð. Skipið, sem siglir undir fána Möltu og með heimahöfn … Halda áfram að lesa Wilson Nice kom með trjáboli →

Rotsund kom til Hafnarfjarðar í gær

IMO 9333644. Rotsund ex Nordkinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Norska flutningaskipið Rotsund kom til Hafnarfjarðar í gær en það ku vera að flytja laxaseiði frá Aberdeen til Þingeyrar. Rotsund hét upphaflega Storfoss og var smíðaður fyrir Eimskip í Vaagland Båtbyggeri AS í Noregi. Skipið er 80 metra langt og 16 metra breitt og mælist 2,990 … Halda áfram að lesa Rotsund kom til Hafnarfjarðar í gær →

Keilir kemur til Reykjavíkur

2946. Keilir. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þessar myndir sem nú birtast voru teknar nú síðdegis þegar olíuskipið Keilir kom til Reykjavíkur og já, sólin skein. Keilir er í eigu Olíudreifingar og var míðaður hjá Akdeniz skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Hann kom til landsins í febrúarmánuði árið 2019. Keilir, sem leysti Laugarnes af hólmi í olíuflutningunum, siglir … Halda áfram að lesa Keilir kemur til Reykjavíkur →

Ambassadeur kom með hráefni til PCC

IMO 9361328. Ambassadeur. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Ambassadeur kom til Húsavíkur í gær með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Ambassadeur siglir undir hollensku flaggi með heimahöfn í Zwartsluis. Skipið var smíðað árið 2007 og er 110,78 metra langt og 14 metra breitt. Það mælist 3,990 GT að stærð. IMO 9361328. Ambassadeur. Ljósmyndir Hafþór … Halda áfram að lesa Ambassadeur kom með hráefni til PCC →