Álftafell SU 100

1126. Álftafell SU 100 ex Villi í Efstabæ BA 214. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Álftafell SU 100 liggur hér við bryggju á Stöðvarfirði sumarið 2004 en þaðan gerði Kross ehf. bátinn út á árunum 2002 - 2007. Báturinn hét upphaflega Skálavík SU 500 og var smíðuð árið 1970 hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. fyrir Þjóðrek hf. … Halda áfram að lesa Álftafell SU 100 →

Hólmsteinn GK 20

573. Hólmsteinn GK 20 ex Hafdís GK 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hólmsteinn GK 20 kemur hér að landi í Sandgerði um árið og enn með gömlu brúna en kominn hvalbakur. Upphaflega hét báturinn Hafdís GK 20 og var smíðaður í Hafnarfirði árið 1946. Hann var 43 brl. að stærð og smíðaður hjá Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. … Halda áfram að lesa Hólmsteinn GK 20 →

Þórður Jónasson EA 350

264. Þórður Jónasson EA 350 ex Þórður Jónasson RE 350. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér siglir Þórður Jónasson EA 350 á Akureyrarpolli um árið en Akureyri var lengstum hans heimahöfn. Þórður Jónasson, sem smíðaður var í Noregi og kom til Akureyrar í júníbyrjun árið 1964, var upphaflega RE 350. Hann var smíðaður fyrir Valtý Þorsteinsson útgerðarmann … Halda áfram að lesa Þórður Jónasson EA 350 →

Sigrún GK 380

1173. Sigrún GK 380 ex Sæþór KE 70. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigrún GK 380 hét upphaflega Sæþór KE 70 og var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi. Hann var smíðaður fyrir útgerðarfélagið Sænes hf. í Keflavík og var afhentur í júnímánuði árið 1971. Báturinn var 49 brl. að stærð búinn 240 hestafla Kelvin aðalvél. Hann var … Halda áfram að lesa Sigrún GK 380 →

Sólfell á síldveiðum

161. Sólfell EA 640 ex Ólafur Magnússon EA 250. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta Sólfelli EA 640 við síldveiðar inn á einum af fjörðum Austfjarða. Mig minnir á Berufirði og þetta var annað hvort haustið 1984 eða 1986. Sólfell EA 640 hét áður Ólafur Magnússon EA 250 en snemma árs 1983, keypti Njörður … Halda áfram að lesa Sólfell á síldveiðum →

Grettir SH 104

182. Grettir SH 104 ex Ólafur Ingi KE 34. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Grettir SH 104 frá Stykkishólmi lætur hér úr höfn á Húsavík í nóvembermánuði árið 2004. Grettir hét upphaflega Sigurður Jónsson SU 150 og var smíðaður í Noregi 1963 og kom til heimahafnar á Breiðdalsvík í nóvember það ár. Grettir hét áður Ólafur Ingi KE … Halda áfram að lesa Grettir SH 104 →

Tveir nýir frá Trefjum

Ørsvåg III N-94-V - Ørsvåg II N-93-V. Ljósmynd Magnús Jónsson 2022. Hér kemur myndasyrpa af tveim Cleopatra 33 bátum frá Trefjum sem fara til Noregs innan skamms og verður heimahöfn þeirra Svolvær. Myndirnar tók Maggi Jóns í Hafnarfirði og þær tala sínu máli þangað til nánari fréttir af bátunum koma frá Trefjum. Ørsvåg III N-94-V … Halda áfram að lesa Tveir nýir frá Trefjum →

Óskar RE 157

962. Óskar RE 157 ex Óskar ÞH 380. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2010. Á þessari mynd Tryggva Sigurðssonar gefur að líta Óskar RE 157 í sinni síðustu siglingu en áfangastaðurinn var Ghent í Belgíu en þar var báturinn rifinn niður í brotajárn. Bátnum hefur verið gerð ágætis skil á síðunni en upphaflega, og lengst af, hét … Halda áfram að lesa Óskar RE 157 →