1438. Fiskir HF 51 ex Haförn KE 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Fiskir HF 51 hét upphaflega Vinur SH 140 og var smíðaður á Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta á Akureyri 1975. Hann var 36 brl. að stærð. Árið 1976 fékk Vinur nýja heimahöfn á Hólmavík og varð ST 28. Árið 1978 fékk báturinn nafnið Heiðrún EA … Halda áfram að lesa Fiskir HF 51
Flokkur: Bátar
Haförn EA 155
Haförn EA 155. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Haförn EA 155 frá Hrísey er hér að draga netin á Breiðafirði um árið, 1982 sennilega, og í fjarska má sjá Auðbjörgu EA 22 og Björgu Jónsdóttur ÞH 321. Báturin, sem var 27 brl. að stærð, var smíðaður árið 1973 í Skipasmíðastöð KEA á Akureyri fyrir Jóhann Sigurbjörnsson í … Halda áfram að lesa Haförn EA 155
Berghildur SK 137
1564. Berghildur SK 137 ex Faxavík GK 727. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Berghildur SK 137, sem var 16 brl. að stærð, hét upphaflega Gróa KE 51 og var smíðuð hjá Dráttarbraut Keflavíkur árið 1980. Árið 1982 fékk báturinn nafnið Kristín Björg KE 51 og ári síðar fékk hann nafnið Byr ÍS 77 sem hann bar til … Halda áfram að lesa Berghildur SK 137
Maggý VE 108
1855. Maggý VE 108 ex Ósk KE 5. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Jón Steinar tók þessar myndir í gær af dragnótabátnum Maggý VE 108 þar sem hann var við veiðar út af Staðarbót vestan Grindavíkur. Báturinn hét upphaflega Skálavík SH 208 og var smíðaður í Póllandi árið 1988. 1855. Maggý VE 108 ex Ósk KE 5. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson … Halda áfram að lesa Maggý VE 108
Markús KE 177
1426. Markús KE 177 ex Markús SH 271. Ljósmynd Vigfús Markússon. Markús KE 177 hét upphaflega Hvanney SF 51 var smíðaður hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1975 fyrir Borgey hf. á Höfn í Hornafirði. Hvanney SF 5, sem var lengd og yfirbyggð árið 1987, var í flota Hornfirðinga til ársins 2004 er hún var seld til Ólafsvíkur … Halda áfram að lesa Markús KE 177
Andey ÁR 10
2405. Andey ÁR 10 ex Andey HU 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Andey ÁR 10 kemur hér að landi í Sandgerðu sumarið 2012 en hún var með heimahöfn á Stokkseyri. Báturinn, sem er 25 BT. að stærð, var smíðaður hjá Storebö Mek. Verksted í Kristiansund í Noregi árið 1983 og hét upphaflega Fjørdfangst. Fjørdfangst var … Halda áfram að lesa Andey ÁR 10
Sandblástur í gangi
264. Þórður Jónasson EA 350 ex Þórður Jónasson RE 350. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Á þessari mynd sem tekin var á Akureyri um miðjan níunda áratug síðustu aldar er unnið að sandblæstri á Þórði Jónassyni EA 350. Gæti hafa verið vorið 1984. Björgvin EA 311 er við kantinn og þá sér í afturendann á Sigurði RE … Halda áfram að lesa Sandblástur í gangi
Brynjólfur ÁR 4
225. Brynjólfur ÁR 4 ex Skálafell SF 95. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Brynjólfur ÁR 4 hét upphaflega Þorlákur Ingimundarson ÍS 15 frá Bolungarvík, báturinn sem var 115 brl. að stærð, var smíðaður í Danmörku árið 1963. Árið 1965 var báturinn seldur til Ólafsfjarðar þar sem hann fékk nafnið Þorleifur ÓF 60. Fimm áum síðar fékk báturinn … Halda áfram að lesa Brynjólfur ÁR 4
Núpur BA 69
1591. Núpur BA 69 ex Núpur SU 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Línubáturinn Núpur BA 69 frá Patreksfirði kemur hér til hafnar á Húsavík haustið 2005 en það var Oddi hf. sem gerði hann út. Núpur, sem keyptur var frá Færeyjum árið 1981, var smíðaður í Póllandi árið 1976 og hét upphaflega Nupur KG 35 … Halda áfram að lesa Núpur BA 69
Landað úr Sigurþór GK
Sigurþór GK 43 ex Árni ÓF 44. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér er verið að landa úr netabátnum Sigurþór GK 43 í Grindavíkurhöfn en þaðan var báturinn gerður út árin 1983 til 1991. Sigurþór hét upphaflega Árni ÓF 44 og var smíðaður 1975 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd. Báturinn, sem var rétt tæplega 30 brl. … Halda áfram að lesa Landað úr Sigurþór GK









