Hafborg á veiðum

2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026.

Jón Steinar náði í gær þessum myndum af Hafborginni EA 152 þar sem hún var á dragnótaveiðum á utanverðum Eyjafirði.

Hafborg var smíðuð 2017 í Hvide Sande í Danmörku samkvæmt skráningu. Skrokkurinn var þó smíðaður í Szczecin í Póllandi og dreginn til Danmerkur hvar smíðin var fullkláruð. Hún er 25,95 metra löng og átta metra breið, búin til veiða með net og dragnót.

Hafborg kom til landsins í upphafi árs 2018.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd