Þórsnes SH 109

2936. Þórsnes SH 109 ex Veidar 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

Netabáturinn Þórsnes SH 109 heldur hér til veiða síðdegis í dag eftir löndun á Akureyri en hann stundar nú grálúðuveiðar.

Þórsnesið var keypt frá Noregi og kom til heimhafnar í Stykkishólmi sumarið 2017. Í Noregi  bar það nafnið Veidar 1 M-76-G og var með heimahöfn í Álasundi.

Þórsnes, sem er 880 brúttótonna línu- og netabátur, 43,3 metrar á lengd og 10,5 metrar á breidd, var smíðað árið 1996.

Eigandi Þórsnes ehf. í Stykkishólmi.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd