
Bárður SH 81 kemur hér til hafnar á Húsavík í dag en hann hefur verið við dragnótaveiðar hér Norðanlands upp á síðkastið.
Bárður SH 81 var smíðaður í Bredgaard bátasmiðjunni í Rødby í Danmörku. Bárður kom til landsins í nóvembermánuði 2019.
Bárður SH 81 er 26,90 metra langur og 7 metra breiður og mælist 153 brúttótonn að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution