Lista kom til Þorlákshafnar í gær

IMO 9503627. Lista ex Eurocargo Catania. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Flutningaskipið Lista kom til Þorlákshafnar í gærmorgun og tók Jón Steinar þessar myndir við það tækifæri. Svo segir á síðu ljósmyndarans Báta og bryggjubrölti: Smyril Line tók Lista á leigu eftir að skip þeirra Glyvursnes skemmdist af völdum eldsvoða í byrjun janúar.  Það kemur til … Halda áfram að lesa Lista kom til Þorlákshafnar í gær →

Glaður SU 97

1910. Glaður SU 97 ex Gestur SU 160. Ljósmynd Vigfús Markússon. Glaður SU 97 hét upphaflega Gestur SU 160 og var smíðaður árið 1988 hjá Baldri Halldórssyni skipasmið á Híðarenda við Akureyri. Báturinn var gerður út frá Djúpavogi til ársins 2020 en þá var hann seldur til Þorlákshafnar þar sem hann fékk nafnið Stórborg ÁR 1. … Halda áfram að lesa Glaður SU 97 →

Ásgeir SH 150

950. Ásgeir SH 150 ex Gísli Gunnarsson II SH 85. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ásgeir SH 150 hét upphaflega Farsæll II EA 130 og var smíðaður fyrir Hríseyinga í Skipasmíðastöð KEA árið 1964.  Báturinn, sem er 18 brl. að stærð, var seldur til Húsavíkur síðar það ár og kom þangað í byrjun desember. Kaupandi var Útgerðarfélagið Vísir h/f … Halda áfram að lesa Ásgeir SH 150 →

Erlingur SF 65

1379. Erlingur SF 65 ex Haförn EA 955. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Erlingur SF 65 var smíðaður hjá Slippstöðinni á Akureyri 1974 og hafði fengið nafnið Kópanes BA 99 þegar hann var sjósettur.  Báturinn var upphaflega smíðaður fyrir Einhamar hf. á Bíldudal en áður en til afhendingar kom seldi fyrirtækið bátinn til Mumma hf. í Sandgerði … Halda áfram að lesa Erlingur SF 65 →

Poseidon EA 303

1412. Poseidon EA 303 ex Harðbakur EA 303. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2011. Hér liggur rannsóknarskipið Poseidon EA 303 við bryggju á Akureyri í aprílmánuði árið 2011. Harðbakur EA 303 var smíðaður í San Juan skammt frá San Sebastian á Norður-Spáni fyrir Útgerðarfélag Akureyringa h/f. Harðbakur, sem var síðastur Spánartogaranna sex af stærri gerðinni, kom til … Halda áfram að lesa Poseidon EA 303 →

Sigrún Björk ÞH 100

7882. Sigrún Björk ÞH 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Handfærabáturinn Sigrún Björk ÞH 100 kemur hér að landi á Húsavík í gær en það er Dodda ehf. sem gerir hann út. Sigrún Björk er Sómi 990 sem Víkingbátar smíðuðu fyrir Doddu ehf. og afhentu fyrir rúmu ári síðan. 7882. Sigrún Björk ÞH 100. Ljósmyndir Hafþór … Halda áfram að lesa Sigrún Björk ÞH 100 →