Þorsteinn í slipp á Húsavík

926. Þorsteinn GK 15 ex Þorsteinn EA 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ég hef áður birt mynd af Þorsteini GK 15 í slipp á Húsavík en læt samt aðra vaða. Báturinn var smíðaður fyrir Aðalstein Loftsson á Dalvík í Fal­ken­berg í Svíþjóð árið 1946 og hefur alla tíð heitið Þorsteinn. Upphaflega EA 15, þá GK 15 … Halda áfram að lesa Þorsteinn í slipp á Húsavík →

Vestmannaey VE 54 kom með fullfermi til Grindavíkur í gær

2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Það voru austsuaustan 12-13 metrar og rigningarsuddi í honum eins og ljósmyndarinn orðaði það þegar Vestmannaey VE 54 kom til hafnar í Grindavík í gærmorgun. Vestmannaey var með fullfermi í þessum túr og fer aflinn að mestu til vinnslu hjá Vísi í Grindavík. Vestmannaey er í eigu … Halda áfram að lesa Vestmannaey VE 54 kom með fullfermi til Grindavíkur í gær →

Jóhanna Gísladóttir landaði í Grindavík í gær

2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar 2025. Jóhanna Gísladóttir kom til löndunar í Grindavík snemma í gærmorgun og var aflinn um 240 kör sem gerir um það bil 76 tonn. Uppistaða aflans var þorskur, ýsa og steinbítur. Vísir keypti togarann frá Vestmannaeyjum árið 2021 þar sem hann bar nafnið … Halda áfram að lesa Jóhanna Gísladóttir landaði í Grindavík í gær →

Ný Cleopatra 33 afhent til Englands

Maverick III E 200. Ljósmynd Trefjar 2025. Trefjar afhentu á dögunum nýjan Cleopatra 33 bát, Maverick III, til Lyme Regis í Dorset á suðurströnd Englands. Eigandi og skipstjóri bátsins er Brett Newton frá Beer og að hans sögn verður báturinn gerður út frá Lyme Regis allt árið um kring. Aðalvél bátsins er FPT C90 tengd … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 33 afhent til Englands →