Ný Cleopatra 33 afhent til Englands

Maverick III E 200. Ljósmynd Trefjar 2025.

Trefjar afhentu á dögunum nýjan Cleopatra 33 bát, Maverick III, til Lyme Regis í Dorset á suðurströnd Englands.

Eigandi og skipstjóri bátsins er Brett Newton frá Beer og að hans sögn verður báturinn gerður út frá Lyme Regis allt árið um kring.

Aðalvél bátsins er FPT C90 tengd við ZF 286IV gír og siglingatæki eru frá Simrad/Hondex/Olex.

Báturinn er með vökvadrifinni bógskrúfu sem er tengdur við sjálfstýringu bátsins sem er útbúinn fyrir gildruveiðar á töskukrabba, beitukóngi og humri.

Lestin er útbúin með með sprinklerkerfi til að halda lífinu í aflanum um borð en reiknað er með að báturinn afkasti 700 gildrum á dag. Það er pláss fyrir allt að 12 x 380 lítra kör í lestinni.

Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.

Í lúkar eru kojur fyrir þrjá auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofni og ísskáp.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd