2449. Pálína Þórunn GK 49 ex Steinunn SF 10. Ljósmynd Þór Jónsson 2020. Þór Jónsson skipverji á Ljósafellinu SU tók þessa mynd á dögunum af togskipinu Pálínu Þórunni GK 49 frá Sandgerði. Pálína Þórunn GK 49 hét áður Steinunn SF 10 en eins og margir vita keypti Nesfiskur hf. hana af Skinney-Þinganesi hf. í fyrra. … Halda áfram að lesa Pálína Þórunn á toginu
Author: Hafþór Hreiðarsson
Sleipnir
2250. Sleipnir. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Sleipnir, hafnarbátur Hafnarsamlags Norðurlands, siglir hér til móts við flutningaskip sem kom til Húsavíkur í vikunni. Sleipnir var smíðaður á Akureyri árið 1995 og er 41 BT að stærð. Togkraftur hans er 11,2 tonn. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By … Halda áfram að lesa Sleipnir
Þrasi VE 20
6776. Þrasi VE 20 ex Láki ÁR 12. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Þrasi VE 20 varð fyrir linsunni hjá Hólmgeir Austfjörð í gær en báturinn er af Sómagerð. Smíðaður í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1986. Báturinn, sem er tæplega 6 brl. að stærð, var fyrst gerður út frá Ólafsvík undir nafninu Eddi SH 101. … Halda áfram að lesa Þrasi VE 20
Maggý á landleið í dag
1855. Maggý VE 108 ex Ósk KE 5. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Hólmgeir Austfjörð tók þessa myndasyrpu í dag af Maggý VE 108 koma til hafnar í Vestmannaeyjum. Báturinn, sem gerður er út af Narfa ehf., stundar veiðar með dargnót og hefur fiskað vel að undanförnu. Upphaflega hét báturinn Skálavík SH 208 eins og kom … Halda áfram að lesa Maggý á landleið í dag
Katrín orðin blá – Myndasyrpa
1890. Katrín GK 266 ex Una GK 266. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Línubátur Stakkavíkur ehf., Katrín GK 266, var í skveringu í Njarðvík um daginn og kom blá út úr henni. Jón Steinar tók þessa myndasyrpur af Katrínu GK 266 í gær er hún kom til hafnar í Grindavík. Það brimaði aðeins þegar að hæg norðanáttin … Halda áfram að lesa Katrín orðin blá – Myndasyrpa
Ósk ÞH 54 á landstími
2447. Ósk ÞH 54 ex Guðný NS 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Ósk ÞH 54 var á ferðinni í dag og kannski var Siggi að leggja netin. Óskin er tæp 12 bt. að stærð af AWI-gerð og smíðuð í Færeyjum 1999. Eigandi frá árinu 2016 er Sigurður Kristjánsson sem áður gerði út Von ÞH 54. Ósk ÞH … Halda áfram að lesa Ósk ÞH 54 á landstími
Vlieborg lagðist að Bökugarðinum í dag
IMO 9554781. Vlieborg við komuna til Húsavíkur í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hollenska flutningaskipið Vlieborg kom að Bökugarðinum í dag en skipið hefur legið fyrir festum á Skjálfanda undanfarna sólahringa. Skipið, sem er með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka, var smíðað árið 2012. Það er 142.65 metra langt og breidd þess er 15.87 metrar. Það … Halda áfram að lesa Vlieborg lagðist að Bökugarðinum í dag
Finndu fimm breytingar 2
2158. Tjaldur SH 270. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Það virðist sem einhverjum hafi fundist þessi leikur í gær skemmtilegur og því best að henda í annan leik sem felst í því að finna fimm breytingar á þessum tveim myndum. 2158. Tjaldur SH 270. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Koma má með lausnirnar í athugasemdarkerfinu hér að … Halda áfram að lesa Finndu fimm breytingar 2
Tindur fær nafnið Drangur
1686. Tindur ÁR 307 ex Tindur ÍS 307. Ljósmynd Þór Jónsson 2019. Tindur ÁR 307, sem er í eigu Aurora Seafood ehf. hefur samkvæmt skipaskrá á vef Samgöngustofu fengið nafnið Drangur ÁR 307. Tindur ÁR 307 var smíðaður í Njarðvík árið 1984 og hét upphaflega Haukur Böðvarsson ÍS 847. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Tindur fær nafnið Drangur
Helgi SH 135 seldur Aurora Seafood
2017. Helgi SH 135 ex Þór Pétursson GK 504. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Togskipið Helgi SH 135 hefur verið seldur frá Grundarfirði og er kaupandinn Aurora Seafood ehf. sem nefndi bátinn Tind ÍS 235. Helgi SH 135 hét upphaflega Þór Pétursson ÞH 50 og var í eigu Njarðar hf. í Sandgerði, smíðaður á Ísafirði 1989. Guðmundur Runólfsson … Halda áfram að lesa Helgi SH 135 seldur Aurora Seafood









