233. Erling KE 140 ex Óli á Stað GK 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Netabáturinn Erling KE 140 lét úr höfn á Húsavík næu undir kvöld og voru þessar myndir teknar þá. Erling er í eigu Saltvers ehf. í Reykjanesbæ en Brim hf. leigir hann um þessar mundir og gerir út til grálúðuveiða í net. … Halda áfram að lesa Erling KE 140
Author: Hafþór Hreiðarsson
Ási ÞH 19
755. Ási ÞH 19 ex Þorfinnur EA 120. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ási ÞH 19 hét upphaflega Ófeigur EA 17 og var smíðaður í skipasmíðastöð KEA árið 1955. Hann var smíðaður fyrir Sæmund Benediktsson og Stefán Snælaugsson á Litla-Árskógssandi. Báturinn, sem var 5,5 brl. að stærð og búinn 32 hestafla Lister díselvél, var seldur á Sauðárkrók … Halda áfram að lesa Ási ÞH 19
Björgvin EA 311
27. Björgvin EA 311. Ljósmynd Hannes Baldvinsson. Tappatogarinn Björgvin EA 311 er hér á mynd Hannesar Baldvinssonar koma að landi á Siglufirði. Björgvin var smíðaður í Stralsund í A- Þýskalandi 1958 og kom til heimahafnar á Dalvík á Þorláksmessu það ár. Í Alþýðumanninum sem gefinn var út á Akureyri birtist eftirfarandi frétt þann 30. desember … Halda áfram að lesa Björgvin EA 311
Árni á Bakka ÞH 380
27. Árni á Bakka ÞH 380. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér liggur Árni á Bakka ÞH 380 við bryggju á athafnasvæði Slippstöðvarinnar á Akureyri um árið. Árni á Bakka ÞH 380 var gerður út til rækjuveiða frá Kópaskeri árin 1987-1989 en Sæblik h/f keypti bátinn frá Hafnarfirði og kom hann til heimahafnar vorið 1987. Árni á … Halda áfram að lesa Árni á Bakka ÞH 380
Vilborg
6431. Vilborg ÞH 11 ex Eyrún ÞH 268. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Vilborg ÞH 11 kemur hér í plássið sitt við eina flotbryggjuna í Húsavíkurhöfn í dag. Báturinn, sem er í eigu Hreiðars Jósteinssonar á Húsavík, er af gerðinni Skel 80 og var smíðuð í Trefjum árið 1982. Vilborg mælist 5,3 brl./5,21 BT að stærð … Halda áfram að lesa Vilborg
Skúmur ÍS 322
1872. Skúmur ÍS 322 ex Skúmur GK 22. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1995. Hreiðar Olgeirsson tók þessa mynd veturinn 1995 þegar Skúmur ÍS 322 kom að slippkantinum á Akureyri. Geiri Péturs ehf. á Húsavík hafði þá keypt skipið sem var að fara í skveringu hjá Slippstöðinni. Upphaflega hét skipið Skúmur GK 22 í eigu Fiskaness h/f … Halda áfram að lesa Skúmur ÍS 322
Örvar SH 777 kemur að á Rifi
2159. Örvar SH 777 ex Vestkapp SF-8-S. Ljósmynd Óskar Frans 2020. Línuskipið Örvar SH 777 kom til hafnar á Rifi um helgina og tók óskar Frans þessa mynd við það tækifæri. Örvar SH 777 hét upphaflega Tjaldur II SH 370 og var smíðaður í Noregi fyrir KG fiskverkun á Rifi árið 1992. Líkt og systurskipið Tjaldur … Halda áfram að lesa Örvar SH 777 kemur að á Rifi
Sementsflutningaskipið Danavik
IMO 8221363. Danavik ex Klc Banshee. Ljósmynd KEÓ 2020. Sementsflutningaskipið Danavik kom til Helguvíkur um helgina og tók Karl Einar Óskarsson hafnarvörður þessar myndir. Danavik, sem siglir undir fána Marshalleyja, var smíða árið 1983. Það er 104 metrar að lengd og 16 metra breitt. Mælist 3,625 brúttótonn að stærð og er með heimahöfn í Majuro. … Halda áfram að lesa Sementsflutningaskipið Danavik
Runólfur SH 135
2744. Runólfur SH 135 ex Bergey VE 544. Ljósmynd Óskar Franz 2020. Runólfur SH 135 kom til löndunar á Grundarfirði í gær og tók Óskar Franz þessa mynd þá. Runólfur SH 135 hét áður Bergey VE 544 og var smíðaður fyrir Berg-Hugin í Gdynia í Póllandi árið 2007. Guðmundur Runólfsson hf. í Grundarfirði keypti skipið, sem … Halda áfram að lesa Runólfur SH 135
Nýr Vilhelm sjósettur í Gdynia
Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Ljósmynd Samherji.is 2020. Nýr Vilhelm Þorsteinsson EA var sjósettur hjá skipasmíðastöðinni Karstensens Skibsværft í Gdynia í Póllandi hinn 12. júní síðastliðinn. Skrokkurinn var tilbúinn til sjósetningar fyrir átta vikum en vegna Covid-19 heimsfaraldursins var ekki að ráðist í hana fyrr en nú. Á heimasíðu Samherja segir að skipið muni leysa af … Halda áfram að lesa Nýr Vilhelm sjósettur í Gdynia









