Kristín ÞH 55

7526. Kristín ÞH 55 ex Kristín HU 219. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Strandveiðibáturinn Kristín ÞH 55 kom til Húsavíkur áðan en veiðar mega hefjast á morgun. Kristín er gerð út af Möðruvöllum ehf. á Akureyri en er með heimahöfn á Raufarhöfn þaðan sem hún hefur verið gerð út. Landaði í fyrra ýmist á Raufarhöfn eða … Halda áfram að lesa Kristín ÞH 55

Óskar ÞH 208

6009. Óskar ÞH 208. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Óskar ÞH 208 er hér á siglingu á Skjálfanda um árið en hann var smíðaður fyrir Kristján Gunnar Óskarsson árið 1978. Smíði bátsins, sem er rúmlega 2 brl. að stærð, fór fram í Bátasmiðjunni Mótun í Hafnarfirði. Báturinn skipti um eigendur innan bæjar á Húsavík í tvígang. Baldvin … Halda áfram að lesa Óskar ÞH 208

Kristján HF 100

2961. Kristján HF 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Línubáturinn Kristján HF 100 kemur hér til Grindavíkur á dögunum og var að ég held að koma austan af fjörðum. Kristján HF 100 er yfirbyggður Cleopatra 46B beitningavélarbátur frá Trefjum sem var afhentur sumarið 2018. Báturinn er 14 metrar að lengd og mælist 30 brúttótonn. Útgerð Grunnur ehf.. … Halda áfram að lesa Kristján HF 100

Valdís ÍS 889

7485. Valdís ÍS 889 ex Jóhannes á Ökrum AK 180. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Handfærabáturinn Valdís ÍS 889 frá Suðureyri kemur hér að landi í Grindavík á dögunum. Valdís, sem er 6 brl. að stærð, var smíðuð í Bátastöðinni Knörr ehf, á Akranesi árið 1999. Báturinn var smíðaður fyrir Bjarna Jóhannesson á Akranesi og fékk … Halda áfram að lesa Valdís ÍS 889

Fjølnir GK kom með fullfermi í gær

1136. Fjølnir GK 157 ex Ocean Breeze GK. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2023. Línuskipið Fjølnir GK 157 kemur hér til hafnar í Grindavík í gær en báturinn var með fullfermi, aflinn 350 kör sem gerir alls 110 tonn. Uppistaða aflans, sem fékkst í fjórum lögnum, skiptist nánast jafnt milli þorsks, ýsu og löngu, rétt rúm … Halda áfram að lesa Fjølnir GK kom með fullfermi í gær

Sigurbjörg ÞH 62

739. Sigurbjörg ÞH 62. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurbjörg ÞH 62 var smíðuð á Akureyri árið 1959 fyrir Björgvin Pálsson, Jóhannes Jóhannesson, Hall Jóhannesson og Guðlaug Jóhannesson Flatey á Skjálfanda. Um smíði hans má lesa á aba.is Sigurbjörg var 10 brl. að stærð með 52 hestafla Petters díselvél. 1965 var sett í hann Perkins díselvél. Báturinn var … Halda áfram að lesa Sigurbjörg ÞH 62