1363. Snæfugl SU 20 ex Guðbjörg ÍS 46. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Snæfugl SU 20 hét upphaflega Guðbjörg ÍS 46 og var smíðuð fyrir Hrönn hf. á Ísafirði árið 1974. Smíðin fór fram hjá Flekkefjord Slipp og Maskinfabrikk í Noregi og kom Guðbjörg til heimahafnar á Ísafirði 20. mars 1974. Árið 1981 fékk togarinn það nafn sem … Halda áfram að lesa Snæfugl SU 20
Author: Hafþór Hreiðarsson
Fanney ÞH 130
1445. Fanney ÞH 130. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Fanney ÞH 130 kemur hér að landi á Húsavík um árið en þarna var hún í eigu Ólafs Ármanns Sigurðssonar á Húsavík. Fanney var upphaflega í eigu Sigurbjörns Kristjánssonar, Sigtryggs Kristjánssonar og Ívars Júlíussonar á Húsavík. Fanney, sem er 22 brl. að stærð, var smíðuð í Slippstöðinni á … Halda áfram að lesa Fanney ÞH 130
Máni ÞH 98
1920. Máni ÞH 98 ex Máni EA 36. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2016. Máni ÞH 98 kemur hér til hafnar á Húsavík úr línuróðri haustið 2013 en hann var smíðaður í Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1988. Máni hét upphaflega Þjóðólfur ÍS 86 frá Bolungarvík en þaðan var hann seldur til Keflavíkur árið 2004. Í Keflavík fékk báturinn … Halda áfram að lesa Máni ÞH 98
Margrét við Oddeyrarbryggju í dag
3038. Margrét EA 710 ex ex Christina S FR 224. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Margrét EA 710, uppsjávarveiðiskip Samherja, hefur legið við Oddeyrarbryggju á Akureyri að undanförnu og var þessi mynd af henni tekin í dag. Samherji keypti skipið frá Skotlandi í marsmánuði 2023 en þar bar það nafnið Christina S. Margrét EA 710 er 2,411 GT … Halda áfram að lesa Margrét við Oddeyrarbryggju í dag
Haugefisk kom á Sail Húsavík 2011
IMO 7705037. Haugefisk SF - B. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2011. Norski báturinn Haugefisk kom til Húsavíkur þegar siglingahátíðin Sail Húsavík var haldin hér sumarið 2011. Á heimasíðu hátíðarinnar sagði að að Haugefisk hafi verið smíðaður árið 1978 á skipasmíðastöðinni H & E Nordtvedt á Fusa í Hörðalandi. Þar sagði jafnframt: Skipið var notað til línuveiða … Halda áfram að lesa Haugefisk kom á Sail Húsavík 2011
Hinni á Skjálfanda
1547. Hinni ÞH 70 ex Sveinn Sveinsson BA 325. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Hinni ÞH 70 er hér á siglingu á Skjálfanda í júní 2005 en hann var þá við dragnótaveiðar. Báturinn hét upphaflega Neisti HU 5 og var smíðaður í Básum hf. í Hafnarfirði árið 1979. Hann er 24 brl. að stærð og heitir … Halda áfram að lesa Hinni á Skjálfanda
Julie kom í dag
IMO 9277307. Julie ex Gures. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Julie kom til Húsavíkur í dag og lagðist að Bökugarði þar sem skipað er upp hráefnisfami fyrir kíslilver PCC á Bakka. Julie, sem kalla má fastagest hér á Húsavík, hafði legið í vari sunnan við Langanes um helgina ásamt Vechtborg sem nú liggur hér framundan … Halda áfram að lesa Julie kom í dag
Óli á Stað GK 99
2581. Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Óli á Stað GK 99 kemur til hafnar í Grindavík vorið 2005 en hann var smíðaður fyrir Stakkavík hjá Mótun árið 2003. Árið 2006 var báturinn seldur til Keflavíkur þar sem hann fékk nafnið Freyja KE 100. Það nafn bar báturinn til ársins 2012 er … Halda áfram að lesa Óli á Stað GK 99
Freyja KE 100
2581. Freyja KE 100 ex Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Freyja KE 100 kemur hér að landi í Sandgeði í lok aprílmánaðar árið 2008. Freyja hét áður Óli á Stað GK 99 og var smíðaður fyrir Stakkavík hjá Mótun árið 2003. Freyjunafnið fékk báturinn árið 2006 og bar það til ársins … Halda áfram að lesa Freyja KE 100
Stjörnutindur SU 159
972. Stjörnutindur SU 159 ex Pétur Ingi KE 32. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1986. Stjörnutindur SU 159 liggur hér við bryggju á Akureyri um árið sem mig minnir að hafi verið 1986. Um Stjörnutind má lesa nánar hér en hann var einn átján báta sem raðsmíðaðir voru fyrir Íslendinga í Boizenburg í Austur - Þýskalandi. Með … Halda áfram að lesa Stjörnutindur SU 159









