
Strandveiðibáturinn Spaða Ás ÍS 727, sem sést á þessum myndum koma til hafnar á Suðureyri í vikunni, hét upphaflega Björn EA 220.
Báturinn var smíðaður fyrir Henning Jóhannesson í Grímsey hjá Seiglu í Reykjavík árið 2002.
Árið 2005 var Björn EA 21 um tíma en fékk síðan nafnið Gyða Jónsdóttir EA 20.
Báturinn var seldur úr Grímsey árið 2006 og fór til Suðureyrar þar sem hann fékk nafnið Berti G. ÍS 727.
Vorið 2023 fékk báturinn nafnið Spaða Ás ÍS 727 sem hann ber enn þann dag í dag.


Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution