
Jón Steinar myndaði netabátinn Grímsa GK 555 er hann kom til hafnar í Njarðvík eftir róður í gær.
Báturinn var smíðaður sem línubátur í Noregi 1982 og lengdur 1987.
Valdimar ehf. í Vogum á Vatnsleysuströnd keypt hann til landsins 1999 og fékk báturinn nafnið Vesturborg GK til að byrja með en fékk síðan Valdimarsnafnið.
Núverandi nafn fékk hann í nóvember sl. eftir að fyrirtækið Admiral ehf. keypti bátinn og útbjó til netaveiða.
Grímsi GK 555 er með heimahöfn í Njarðvík.
Báturinn, sem er 569 BT að stærð, bar nöfnin Vestborg, Aarsheim Senior og Bömmelgutt í Noregi.






Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution