
Vesturborg GK 195 liggur hér við bryggju í Njarðvík um árið en báturinn var smíðaður sem línubátur í Noregi 1982 og lengdur 1987.
Valdimar ehf. í Vogum á Vatnsleysuströnd keypt hann til landsins 1999 og fékk báturinn nafnið Vesturborg GK 195 til að byrja með en fékk síðan nafnið Valdimar GK 195.
Báturinn, sem er 569 BT að stærð, bar nöfnin Vestborg, Aarsheim Senior og Bömmelgutt í Noregi.
Í dag heitir báturinn Grímsi GK 555 og er gerður út til netaveiða.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution