
Sigurvík SH 117 hét upphaflega Gullfaxi NK 6 og var smíðaður fyrir samnefnt útgerðarfélag í Frederikssund í Danmörku árið 1955.
Báturinn, sem var 66 brl. að stærð, var seldur til Þingeyrar árið 1960 þar sem hann fékk nafnið Þorgrímur ÍS 175 og þar var hann til ársins 1969.
Þá var hann seldur til Keflavíkur þar sem báturinn hélt nafninu en varð KE 81.
Það var svo árið 1975 sem Auðunn Benediktsson á Kópaskeri keypti bátinn og nefndi Þingey ÞH 102.
Þingey var selt til Grenivíkur árið 1978 þar sem hún fékk nafnið Sigrún ÞH 169 og ári síðar var báturinn kominn til Ólafsvíkur þar sem hann fékk það nafn sem hann ber á myndinni, Sigurvvík SH 117.
Í Ólafsvík var báturinn til ársins 1988 er hann var seldur til Vestmannaeyja þar sem hann fékk nafnið Sigurvík VE 555.
Annars sendi Haukur Sigtryggur miða:
0918….Gullfaxi NK 6…. TF-VN.
Skipasmíðastöð: A / S Mortensen Skibsbygg. Frederikssund. Danmök. 1955.
1970 = Brúttó: 66. U-þilfari: 62. Nettó: 20.
Lengd: 20,25. Breidd: 5,67. Dýpt: 2,50.
Endurbyggt í Dráttarbraut Keflavíkur 1971.
Mótor 1955 Völund 225 hö.
Ný vél 1960 Völund 330 hö.
Ný vél 1975 GM 353 kw. 480 hö.
Gullfaxi NK 6. Útg: Gullfaxi h.f. Neskaupstað. (1955 – 1960).
Þorgrímur ÍS 175. Útg: Sandfell h.f. Þingeyri. (1960 – 1969).
Þorgrímur KE 81. Útg: Jón Sæmundsson. Keflavík. (1969 – 1971).
Þorgrímur KE 81. Útg: Anton Hjörleifsson. Ytri-Njarðvík.(1971).
Þorgrímur KE 81. Útg: Jón Sæmundsson. Keflavík. (1971 – 1974).
Þingey ÞH 102. Útg: Auðunn Benediktsson. Kópaskeri. (1975 – 1978).
Sigrún ÞH 169. Útg: Sævar h.f. Daði Eiðsson. Grenivík. (1978 – 1979).
Sigurvík SH 117. Útg: Sigurður Valdimarsson. Ólafsvík.(1979 – 1988).
Sigurvík VE 555. Útg: Sigurður Ingi Ingólfsson. Vestm. (1988 – 1990).
Sigurvík VE 555. Útg: Eyjavík h.f. Vestmannaeyjum. (1990 – 1991).
Vík VE 555. Útg: Eyjavík h.f. Vestmannaeyjum. (1991).
Skuld VE 263. Útg: Kleifar h.f. Vestmannaeyjum. (1991 – 1993).
Sigurbára VE 249. Útg: Sigurbára h.f. Vestmannaeyjum. (1993 – 1996).
Hrauney VE 41. Útg: Ólgusjór ehf. Vestmannaeyjum. (1996 – 2004).
Rifinn í Vestmannaeyjum 2004.
Tekinn af skrá 28.04.2005.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.