
Eldborg HF 13 siglir hér til hafnar á Eskifirði haustið 1984, eða 1986, og myndin var tekin úr síldveiðibátnum Geira Péturs ÞH 344.
Eldborg HF 13 var smíðuð fyrir samnefnda útgerð árið 1978 og kom til heimahafnar í Hafnarfirði 30. desember það ár.
Skipið var smíðanúmer 136 hjá Fartygsentreprenader AB í Uddevalla í Svíþjóð, sem sá um smíðina. Smíði skipsins var hins vegar með þeim hœtti að smíði á skipsskrokk og yfirbyggingu fór fram í Svíþjóð hjá Karlstadverken.
Síðan var skipið dregið til Danmerkur, þar sem smíðinni var lokið, þ.e. smíði innréttinga, niðursetning á véla- og tœkjabúnaði og annar frágangur.
Það var skipsmíðastöðin Ørskovs Staalskipsvœrft í Fredrikshavn, sem annaðist þennan verkþátt sem ber númer 105 hjá stöðinni. Heimild Ægir 2. tbl. 1979.
Eldborg HF 13 var 59 metrar að lengd, breidd skipsins er 12 metrar og aðalvélar tvær 1600 hestafla Nohab.
Árið 1988 var Eldborg HF 13 seld til Eskifjarðar þar sem hún fékk nafnið Hólmaborg SU 11.
Árið 1996 var Hólmaborg lengd um 14 metra í Gdynia í Póllandi og jókst burðargeta skipsins úr 1.600 tonnum í 2.500 tonn.
Þegar Eskja keypti Aðalstein Jónsson SU 11 árið 2006 fékk Hólmaborgin nafnið Jón Kjartansson SU 111 sem breyttist í SU 311 þegar nýr Jón Kjartansson SU 111 var keyptur frá Skotlandi.
Eftir að hafa legið við bryggju í nokkur ár var skipið selt í brotajárn vorið 2024.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution