
Ríkey RE 10 hét upphaflega Hafrún SU 49 og var með heimahöfn á Eskifirði.
Báturinn var smíðaður hjá Trefjum árið 1991.
Árið síðar fékk Hafrún einkennisstafin ÍS 619 með heimahöfn á Flateyri.
Frá árinu 1995 til 2004 hét hann Hilmir BA 48 með heimahöfn Patreksfirði.
Árið 2004 varð Hilmir BA 148 en þrem árum síðar fékk hann nafnið Dagbjört og 2009 varð Dagbjört komin með RE 10.
Það var svo árið 2023 sem báturinn fékk nafnið Ríkey RE 10.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.