Fosnabátar komu og fóru

Fosna Victoria og Fosna Alpha koma til hafnar á Húsavík í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Þrír norskir þjónustubátar við fiskeldi höfðu viðdvöl á Húsavík í dag en þeir lögðu upp í þessa siglingu frá Reyðarfirði í gær.

Fyrstur kom Fosna Gregar og í kjölfarið komu Fosna Victoria og Fosna Alpha.

Bátarnir lögðu svo úr höfn nú síðdegis og eru nú á siglingu vestur með Norðurlandi og má ætla að leið þeirra liggji vestur á firði.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd