Svanur RE 45

3015. Svanur RE 45 ex Ilvid GR-18-318 Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

Svanur RE 45, nóta- og togskip í eigu Brims hf., liggur hér við bryggju í Reykjavík en myndin var tekin 17. apríl sl.

Skipið hét áður Ilvid GR-18-318 en upphaflega Strand Senior og var smíðað árið 1999.

Lengd skipsins er 67 metrar og breidd þess 13. Það mælist 1,969 brúttóttonn að stærð.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd