Votaberg SU 10

962. Votaberg SU 10 ex Gestur SU 160. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Votaberg SU 10 frá Eskifirði kemur hér til hafnar á Húsavík eftir úthafsrækjuveiðitúr en skipið var gert út af Eskju á Eskifirði. Upphaflega hét skipið Óskar Halldórsson RE 157 og var smíðaður árið ð1964 í Zandaam í Hollandi fyrir Ólaf Óskarsson útgerðarmann í Reykjavík. Óskar Halldórsson … Halda áfram að lesa Votaberg SU 10 →

Kristbjörg II í slipp á Akureyri

1009. Kristbjörg II ÞH 244 ex Þuríður Halldórsdóttir GK 94. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Kristbjörg II ÞH 244 er hér í slipp á Akureyri vorið 1992 og niður fór hún fagurrauð sem Kristbjörg ÞH 44. Báturinn hét upphaflega Sóley ÍS 225 frá Flateyri og kom ný til heimahafnar í lok maímánaðar 1966. Smíðuð í Risør í … Halda áfram að lesa Kristbjörg II í slipp á Akureyri →

Jóhannes Ívar ÍS 193

1321. Jóhannes Ívar ÍS 193 ex Jóhannes Ívar KE 85. Ljósmynd Björgvin Árnason. Jóhannes Ívar ÍS 193 var smíðaður í Vestnes í Noregi árið 1969 og hét Bye Senior þegar hann var keyptur til landsins árið 1973. Þá fékk hann nafnið Reynir GK 177 með heimahöfn í Sandgerði. Annars er miðinn frá Hauk svona: 1321….Reynir … Halda áfram að lesa Jóhannes Ívar ÍS 193 →

Harðbakur EA 303

1412. Harðbakur EA 303. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Harðbakur EA 303 var smíðaður í San Juan skammt frá San Sebastian á Norður-Spáni fyrir Útgerðarfélag Akureringa h/f. Harðbakur, sem var síðastur Spánartogaranna sex af stærri gerðinni, kom til heimahafnar á Akureyri þann 26. mars árið 1975. Útgerðarfélag Akureyringa h/f. fékk einnig næst síðasta skuttogarann sem smíðaður var … Halda áfram að lesa Harðbakur EA 303 →

Kópur BA 175

1063. Kópur BA 175 ex Kópur GK 175. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Línubáturinn Kópur BA 175 frá Tálknafirði kom til Húsavíkur í febrúarmánuði árið 2005 og þá voru þessar myndir teknar. Kópur hét upphaflega Tálknfirðingur BA 325 og var smíðaður í Noregi árið 1968. Eigandi Harðfrystihús Tálknafjarðar. Vorið 1980 kaupir Glettingur hf. í Þorlákshöfn bátinn … Halda áfram að lesa Kópur BA 175 →

Kópur GK 175

1063. Kópur GK 175 ex Jóhann Gíslason ÁR 41. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Kópur GK 175 hét upphaflega Tálknfirðingur BA 325 og var smíðaður í Noregi árið 1968. Eigandi hans Harðfrystihús Tálknafjarðar en vorið 1980 kaupir Glettingur hf. í Þorlákshöfn bátinn og nefnir Jóhann Gíslason ÁR 41. Um sumarið sama ár er hann seldur til Grindavíkur. … Halda áfram að lesa Kópur GK 175 →