Kópur BA 175

1063. Kópur BA 175 ex Kópur GK 175. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005.

Línubáturinn Kópur BA 175 frá Tálknafirði kom til Húsavíkur í febrúarmánuði árið 2005 og þá voru þessar myndir teknar.

Kópur hét upphaflega Tálknfirðingur BA 325 og var smíðaður í Noregi árið 1968. Eigandi Harðfrystihús Tálknafjarðar.

Vorið 1980 kaupir Glettingur hf. í Þorlákshöfn bátinn og nefnir Jóhann Gíslason ÁR 41 en um sumarið sama ár er hann seldur til Grindavíkur.

Kaupendur voru Guðmundur Þorsteinsson og Jóhannes Jónsson og gáfu þeir bátnum nafnið Kópur GK 175. Heimild: Íslensk skip

Byggt var yfir Kópinn árið 1984 og síðar var hann skutlengdur og sett á hann ný brú.

Það var svo síðla árs 2002 að Þórsberg á Tálknafirði keypti Kóp sem varð þá BA 175.

Kópur BA 175 var seldur til Noregs árið 2017 en Nesfiskur hafði keypt hann haustið 2015 og fékk hann þá einkennisstafina GK 39.

Í Noregi fékk hann nafnið Valdimar H.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd