
Kópur GK 175 hét upphaflega Tálknfirðingur BA 325 og var smíðaður í Noregi árið 1968.
Eigandi hans Harðfrystihús Tálknafjarðar en vorið 1980 kaupir Glettingur hf. í Þorlákshöfn bátinn og nefnir Jóhann Gíslason ÁR 41.
Um sumarið sama ár er hann seldur til Grindavíkur.
Kaupendur voru Guðmundur Þorsteinsson og Jóhannes Jónsson og gáfu þeir bátnum nafnið Kópur GK 175. Heimild: Íslensk skip
Byggt var yfir Kópinn árið 1984 og síðar skipt um brú og hann að lokum skutlengdur.
Í desember 2002 keypti Þórsberg á Tálknafirði bátinn sem varð þá Kópur BA 175.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution