Særún EA 251

2793. Særún EA 251 ex Nanna Ósk II SU 90. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Þessar myndir af Særúnu EA 251 voru teknar á Dalvík í dag en báturinn tók þátt í sjóstangveiðimóti um helgina. Særún EA 251 var keypt frá Fáskrúðsfirði í vor en báturinn hét áður Nanna Ósk II. Það var Útgerðarfélagið Stekkjavík ehf. … Halda áfram að lesa Særún EA 251 →

Hafaldan EA 190

2326. Hafaldan EA 190 ex Konráð eldri EA 190. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Grímseyjarbáturinn Hafaldan EA 190 kemur hér að landi á Dalvík í dag en báturinn tók þátt í sjóstangveiðimóti um helgina. Báturinn hét upphaflega Hópsnes GK 118 og var smíðaður árið 1998 fyrir Stakkavík í Grindavík. Smíðin fór fram í Bátagerðinni Samtak í … Halda áfram að lesa Hafaldan EA 190 →

Rún EA 351

2711. Rún EA 251 ex Særún EA 351. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Rún EA 351 kemur hér til hafnar á Árskógsandi í dag eftir siglingu frá Dalvík. Báturinn, sem er af gerðinni Siglufjarðar-Seigur, var smíðaður á Siglufirði árið 2007 og hét upphaflega Lúkas ÍS 71 og var í eigu Álfsfells ehf. á Ísafirði.  Síðar, eða … Halda áfram að lesa Rún EA 351 →

Kalkvik á Skjálfanda

IMO 9341172. Kalkvik. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Flutningaskipið Kalkvik kom til hafnar á Húsavík síðdegis í dag og lagðist að Bökugarði. Skipið siglir undir færeyskum fánað og með heimahöfn í Þórshöfn, var smíðað í Þýskalandi árið 2007. Kalkvik er 5,325 GT að stærð, lengd þess er 114 metrar og breiddin 16 metrar. IMO 9341172. Kalkvik. … Halda áfram að lesa Kalkvik á Skjálfanda →

Sigurbjörg Þorsteins BA 65

1100. Sigurbjörg Þorsteins BA 65 ex Erlingur GK 214. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurbjörg Þorsteins BA 65 frá Bíldudal kemur hér til hafnar á Húsavík um árið. Báturinn hét upphaflega Siglunes SH 22 frá Grundarfirði, smíðaður hjá Þorgeir og Ellert h/f árið 1970 fyrir Hjálmar Gunnarsson útgerðarmann. Hér má lesa nánar um bátinn sem gerður var … Halda áfram að lesa Sigurbjörg Þorsteins BA 65 →

Marina á Skjálfanda

IMO 9438066. Marina. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Farþegaskipið Marina liggur hér framundan Húsavíkurhöfða og farþegar þess selfuttir í land á skipsbátum. Skipið, sem var smíðað í Genova á Ítalíu árið 2011, siglir undir fána Marshalleyja og heimahöfn þess er Majuro. Lengd þess er 239,3 metrar og breiddin 32,2 metrar. Það mælist 66,084 GT að stærð. … Halda áfram að lesa Marina á Skjálfanda →