Vísir SH 77

1926. Vísir SH 77 ex Garpur SH 266. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003.

Vísir SH 77 er hér í Hafnarfjarðarhöfn sumarið 2003 en báturinn er úr smiðju Baldurs Halldórssonar á Hlíðarenda við Akureyri.

Báturinn, sem er af Starletgerð og skrokkur hans innfluttur, var smíðaður fyrir Sigurð Jónsson í Hafnarfirði árið 1988. Hann var lengdur árið 1995 og mælist tæp 11 BT að stærð.

Báturinnvar seldur á Grundarfjörð árið 1989 og fékk nafnið Örninn SH 74. Árið 1991 fékk hann nafnið Garpur SH 266 sem hann bar til ársins 2002 er hann fékk aftur sitt fyrsta nafn, Vísir SH 77. Heimild aba.is

Hempill ehf. gerir Vísi SH 77 út í dag og er heimahöfn hans í Ólafsvík.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd