Ocean Tiger á rækjuveiðum í ísnum við A-Grænland

IMO 9136383. Ocean Tiger R 38. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2022.

Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á rækjutogaranum Reval Viking tók þessa mynd fyrir skömmu af Ocean Tiger R 38 þar sem þeir voru að veiðum í ísnum við Austur-Grænland.

Ocean Tiger er í eigu Ocean Prawn A/S og var smíðaður árið 1997 í Noregi. Togarinn er með heimahöfn í Nexø á Borgundarhólmi.

Hann er 60 metrar að lengd og 14 metra breiður. Mælist 2,223 GT að stærð.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd