5448. Snari ÞH 36 ex Gustur ÞH 36. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Snari ÞH 36 hét upphaflega Gustur BA 11 og var smíðaður árið 1953 af Aðalsteini E. Aðalsteinssyni í Hvallátrum. Á vefnum aba.is segir m.a um Gust BA 11: Stærð 4,80 brl. Smíðaár 1953. Fura og eik. Afturbyggður opinn súðbyrðingur. Báturinn var smíðaður fyrir Andrés … Halda áfram að lesa Snari ÞH 36
Vésteinn GK 8
2908. Vésteinn GK 88. Ljósmynd Jón Steinar 2025. Jón Steinar tók þessar myndir af Vésteini GK 88 í vikunni þar sem hann var á landleið með um tólf tonna afla. Vésteinn GK 88 bættist í flota Einhamars í Grindavík snemma árs 2018 en fyrir gerði fyrirtækið út Auði Vésteins SU 88 og Gísla Súrsson GK 8. Bátarnir eru … Halda áfram að lesa Vésteinn GK 8
Aþena ÞH 305
2436. Aþena ÞH 505 ex Sigurvon ÞH 505. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Grásleppubáturinn Aþena ÞH 505 kemur hér til hafnar á Húsavík í vikunni en kallarnir voru þá langt komnir með kvótann. Afli dagsins rúm þrjú tonn. Aþena var smíðuð hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 2000 og hét upphaflega Gunnar Halldórs ÍS 195 með heimahöfn … Halda áfram að lesa Aþena ÞH 305
Incra kom í gær
IMO 9195858. Incra ex Fluvius Taw. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Flutningaskipið Incra kom til Húsavíkur í gær með áburðarfarm. Skipið var smíðað árið 2000 og fór smíðin fram hjá Damenskipasmíðastöðinni í Hoogezand í Hollandi. Incra er 95,05 metrar að lengd, breidd skipsins er 13,5 metrar og það mælist 2,998 GT að stærð. Skipið siglir undir … Halda áfram að lesa Incra kom í gær
Hav Brim kom í morgun
IMO 9361756. Hav Brim ex Arklow Freedom. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Færeyska flutningaskipið Hav Brim kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum þar sem farmi þess verður skipað upp. Skipið var smíðað í Astilleros de Murueta skipasmíðastöðinni á Norður-Spáni árið 2008 og hét áður Arklow Freedom. Hav Brim er 89,95 metrar að lengd, … Halda áfram að lesa Hav Brim kom í morgun
Gullfaxi ÓF 11
1900. Gullfaxi ÓF 11 ex Gullfaxi NK 6. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér birtast myndir af Gullfaxa ÓF 11 teknar á Árskógssandi og Húsavík. Gullfaxi var upphaflega NK 6 og var smíðaður fyrir Guðmund Þorleifsson í Noregi árið 1988. Gullfaxi varð ÓF 11 árið 1996 og var það til ársins 2001. Þá fékk Gullfaxi einkennisstafina GK … Halda áfram að lesa Gullfaxi ÓF 11
Særún EA 251
2793. Særún EA 251 ex Nanna Ósk II SU 90. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Grásleppubáturinn Særún EA 251 kemur hér að landi á Húsavík í gær en það er GPG Seafood ehf. sem gerir bátinn út. Særún hét upphaflega Nanna Ósk II ÞH 133 frá Raufarhöfn. Hún er af gerðinni Cleopatra 38 og var smíðuð hjá Trefjum í Hafnarfirði árið … Halda áfram að lesa Særún EA 251
Sigrún Björk kemur að landi
7882. Sigrún Björk ÞH 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Handfærabáturinn Sigrún Björk ÞH 100 kemur hér að landi á Húsavík nú síðdegis en það er Dodda ehf. sem gerir hann út. Sigrún Björk er Sómi 990 sem Víkingbátar smíðuðu fyrir Doddu ehf. og afhentu í aprílmánuði árið 2024. 7882. Sigrún Björk ÞH 100. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson … Halda áfram að lesa Sigrún Björk kemur að landi
Kristín ÞH 55
7526. Kristín ÞH 55 ex Kristín HU 219. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Strandveiðibáturinn Kristín ÞH 55 kom til Húsavíkur í dag en veiðar mega hefjast 5. maí nk. Kristín er gerð út af Möðruvöllum ehf. á Akureyri en er með heimahöfn á Raufarhöfn þaðan sem hún hefur jafnan verið gerð út. Hér má lesa nánar um … Halda áfram að lesa Kristín ÞH 55
Víkingur AK 100
2882. Víkingur AK 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Nóta- og togskipið Víkingur AK 100 liggur hér við bryggju í Reykjavík um páskana og veðurblíða algjör. Það er Brim hf. sem gerir Víking út en hann var smíðaður í skipasmíðastöðinni Celiktrans Deniz Insaat Ltd í Tyrklandi og kom til landsins í lok árs 2015. Með því … Halda áfram að lesa Víkingur AK 100









