Katrin Jóhanna VA 410 ex Herøy. Ljósmynd Börkur Kjartansson 2019. Eitt þeirra kolmunnaveiðiskipa sem liggur þessa stundina í vari inn á Donegalflóa við Írland er hin færeyska Katrin Jóhanna VA 410 Skipið var keypt til Færeyja seint á síðasta ári frá Noregi en þar bar það nafnið Herøy. Smíðað árið 1997, skrokkurinn í Nauta Shipyard, … Halda áfram að lesa Katrin Jóhanna VA 410 á Donegalflóa
Hoffell SU 80 landaði 1050 tonnum á Fáskrúðsfirði
2885. Hoffell SU 80 ex Smaragd. Ljósmynd Börkur Kjartansson 2019. Á heimasíðu Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði segir frá löndunum kolmunnaskipa en á síðustu þremur dögum hafa þrjú skip landað þar um 5000 tonnum Norderveg H-182-AV kom á laugardagskvöldið með tæp 1.900 tonn, Knester H-9-AV kom á mánudaginn með um 2.000 tonn. Hoffell SU 80, sem er … Halda áfram að lesa Hoffell SU 80 landaði 1050 tonnum á Fáskrúðsfirði
Huginn VE 55 kom með 1300 tonn til Eyja í morgun
Huginn VE 55. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Huginn VE 55 kom með 1300 tonn af kolmunna til hafnar í Vestmannaeyjum í morgun. 2411. Huginn VE 55 kemur að landi en 2744. Bergey VE 544 lætur úr höfn. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Huginn VE 55 var smíðaður í Chile fyrir samnefnt félag árið 2001 og lengdur … Halda áfram að lesa Huginn VE 55 kom með 1300 tonn til Eyja í morgun
Álsey VE 2 komin á söluskrá
2772. Álsey VE 2 ex Delta H. LJósmynd Hafþór Hreiðarsson 2015. Eyjafréttir segja frá því í dag að uppsjávarskipið Álsey VE 2 sem er í eigu Ísfélagsins sé til sölu. Álsey var smíðuð í Flekkefjord í Noregi 1987 en keypt til landsins 2007. Hét áður Delta H. Álsey VE 2 er 66,65 metrar á lengd … Halda áfram að lesa Álsey VE 2 komin á söluskrá
Beitir NK 123 í vari við strendur Írlands
2900. Beitir NK 123 ex Gitte Henning S 349. Ljósmynd Börkur Kjartansson 2019. Beitir NK 123 var í vari á Donegalflóa á Írlandi í gær eins og fleiri íslensk kolmunnaveiðiskip. Beitir hét áður Gitte Henning S 349 og var smíðaður í skipasmíðastöðinni Western Baltija Shipbuilding í Litháen en kom nýr til Danmerkur í apríl 2014. Beitir NK 123 … Halda áfram að lesa Beitir NK 123 í vari við strendur Írlands
Eldhamar GK 13
297. Eldhamar GK 13 ex Surtsey VE 123. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Vélbáturinn Eldhamar kemur hér til hafnar í Grindvík um árið en þetta nafn bar báturinn árin 1997 og 1998. Eldhamar GK 13, hét upphaflega Magnús Marteinsson NK 85 var smíðaður 1956 fyrir Svein Magnússon útgerðarmann hjá Frederikssund Skipsværft A/S í Frederikssund í Danmörku árið … Halda áfram að lesa Eldhamar GK 13
Breki VE 61 í ólgusjó
2961. Breki VE 61. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Nýjasta skip Eyjaflotans, Breki VE 61, kom til hafnar í Vestmannaeyjum síðdegis í dag og tók Hólmgeir Austfjörð þessar myndir þá. Skipið var afhent Vinnslustöðinni í Kína 13. mars 2018 og kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum í fyrsta skipti þann 6. maí sama ár. Það var ólíkt … Halda áfram að lesa Breki VE 61 í ólgusjó
Börkur NK 122 í vari á Donegalflóa
2865. Börkur NK 122 ex Malen S. Ljósmynd Börkur Kjartansson 2019. Það er slæmt veður á kolmunnamiðunum við Írland og spáin fyrir næstu daga er ljót. Ekki er gert ráð fyrir að fari að lægja fyrr en undir helgi eða á fimmtudag eða föstudag. Frá þessu er sagt á heimasíðu Síldarvinslunnar sem sló á þráðinn … Halda áfram að lesa Börkur NK 122 í vari á Donegalflóa
Kap II VE 7 kom til hafnar í Vestmannaeyjum í morgun
1062. Kap II VE 7 ex Kap II VE 444. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Netabáturinn Kap II VE 7 kom til hafnar í Vestmannaeyjum og tók Hólmgeir Austfjörð þessar myndir þá. Kap II VE 7 var smíðuð í Stálvík árið 1967 og hét upphaflega Óskar Magnússon AK 177. Í Magna, blaði framsóknarmanna á Akranesi, sagði … Halda áfram að lesa Kap II VE 7 kom til hafnar í Vestmannaeyjum í morgun
Ingmundson að draga netin við Lofoten
Ingmundson. Ljósmynd Svafar Gestson 2019. Svafar Gestsson tók þessa mynd af netabátnum Ingmundsson draga netin í blíðskaparveðri í morgun. Fjöldi báta var út af suðurströnd Lofoten, þar sem eru gjöful fiskimið á vetrarvertíðinni. Um Ingmundson er það að segja að hann er 10 metra langur og 4 metra breiður. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Ingmundson að draga netin við Lofoten









