2890. Akurey AK 50. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Ísfisktogarinn Akurey AK kom til hafnar á Sauðárkróki í morgun með rúmlega 130 tonna afla. Þetta er í annað sinn sem togarinn kemur inn til löndunar á Sauðárkróki en aflanum er strax ekið suður yfir heiðar til vinnslu í Reykjavík. Frá þessu segir á vef HB Granda. … Halda áfram að lesa Ísfiskstogarar HB Granda veiða þorsk fyrir norðan land
Grímsnes GK 555
89. Grímsnes GK 555 ex Grímsnes BA 555. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Netabáturinn Grímsnes GK 555 kemur hér að landi í Grindavík í fyrradag. Upphaflega Heimir SU 100 frá Stöðvarfirði, smíðaður í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk As í Noregi 1963 fyrir Varðarútgerðina hf á Stöðvarfirði. Hefur heitið eftirfarandi nöfnum í gegnum tíðina: Mímir ÍS, Hafaldan … Halda áfram að lesa Grímsnes GK 555
Monte Meixumeiro við bryggju
IMO 9329227. Monte Meixueiro. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Spænski skuttogarinn Monte Meixueiro kom til löndunar í gær og liggur við kajann hér rétt við Chapela. Togarinn var smíðaður árið 2005 og mælist 1,790 GT að stærð. Hann er 63 metra langur og 13 metra breiður. Heimahöfn hans er í Vigo en hann var smíðaður fyriri … Halda áfram að lesa Monte Meixumeiro við bryggju
Viðey RE 50 landaði á Sauðárkróki
2895. Viðey RE 50. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Togari HB Granda hf., Viðey RE 50, landaði á Sauðárkróki sl. sunnudag og lét strax úr höfn að löndun lokinni. Jón Steinar tók þessar myndir þegar Viðey RE 50 lét úr höfn. 2895. Viðey RE 50. Ljósmynd Jón Steinar 2019. 2895. Viðey RE 50. Ljósmynd Jón Steinar … Halda áfram að lesa Viðey RE 50 landaði á Sauðárkróki
Keifaberg RE 70 á toginu
1360. Kleifaberg RE 70 ex Kleifaberg RE 7. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hér er Kleifaberg RE 70, frystitogari Útgerðarfélags Reykjavíkur hf, að veiðum fyrir skömmu. Kleifaberg RE 70 hét upphaflega Engey RE 1 og var smíðað fyrir Ísfell hf. í Póllandi árið 1974. Togarinn var 742 brl. að stærð en mælist í dag 839 brl. … Halda áfram að lesa Keifaberg RE 70 á toginu
Tómas Þorvaldsson GK 10
2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex Sisimiut GR 6-500. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar tók þessar myndir sl. fimmtudag þegar frystitogarinn Tómas Þorvaldsson GK 10 lagði upp í sína fyrstu veiðiferð frá Hafnarfirði fyrir Þorbjörn h.f í Grindavík. 2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex Sisimiut GR 6-500. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Þorbjörn hf. fékk … Halda áfram að lesa Tómas Þorvaldsson GK 10
Sigurborg SH 12
2740. Sigurborg SH 12 ex Vörður EA 748. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Óskar Franz tók þessa mynd af Sigurborginni nýju í slippnum í Reykjavík þar sem verið er að skvera hana. Eins og glöggir menn sjá er þetta gamli Vörður EA 748 en eins og áður hefur komið fram á síðunni keypti Fisk Seafood ehf. … Halda áfram að lesa Sigurborg SH 12
Tómas Þorvaldsson GK 10 á Halanum
2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex Sisimiut GR-6-500. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Tómas Þorvaldsson GK 1o er í sinni fyrstu veiðiferð og tók Hólmgeir Austfjörð skipverji á Ottó N Þorlákssyni VE 5 þessa mynd í þokusuddanum á Halanum í dag. Tómas Þorvaldsson GK 10 hét áður Sisimiut GR6-500 en upphaflega er um að ræða togara … Halda áfram að lesa Tómas Þorvaldsson GK 10 á Halanum
Veronica B og Beatriz B í Randes
Veronica B - Beatriz B við kajann í Randes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipin Veronica B og Beatriz B liggja við bryggju í Randes í Vigoflóanum innanverðum. Og hafa legið lengi sýnist mér en skipin eru 14, 016 GT að stærð. 160 metra löng og 25 metra breið. Smíðuð 2007. Þau voru færð þarna inneftir … Halda áfram að lesa Veronica B og Beatriz B í Randes
Muggur EA 26
1186. Muggur EA 26 ex Haförn HU 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2000. Muggur EA 26 kemur hér til Húsavíkur í ágústmánuði árið 2000 þeirra erinda að ná í rækjutroll. Muggur var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1971 fyrir Dalvíkinga og hét upphaflega Bliki EA 12. Síðar Jói á Nesi SH 159 og því næst Ásgeir … Halda áfram að lesa Muggur EA 26









