Circle D’Or SN 937536. Ljósmynd Trefjar 2023. Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afhenti nýlega Cleopatra 33 bát til Le Croisic á vesturströnd Frakklands.Að útgerðinni stendur David Le Dreau sem einniger skipstjóri á bátnum. Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Circle D’Or eða Gullni hringurinn sem er hnýttinn tilvísun í gullna hringinn á Íslandi. Circle D’Or er af … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 33 til Frakklands
Lilja BA á Arnarfirði
3037. Lilja BA. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2023. Lilja BA siglir hér frá Bíldudal og út á Arnarfjörðinn en þar eru fiskeldiskvíar sem báturinn þjónar. Fiskeldisfyrirtækið Arnarlax ehf. er eigandi bátsins sem smíðaður var árið 2020. Hann er tvíbytna, 14 metrar að lengd, og mælist 45,45 BT að stærð. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Lilja BA á Arnarfirði
Julie kom til Húsavíkur í dag
IMO 9277307. Julie ex Gures. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Flutningaskipið Julie kom til Húsavíkur í dag og lagðist að Bökugarði þar sem skipað verður upp hráefnisfami fyrir kíslilver PCC á Bakka. Julie, sem siglir undir fána Portúgals með heimahöfn á Madeira, var smíðað í Hollandi árið 2003. Skipið, sem áður hefur borið nöfnin Gures, Tip … Halda áfram að lesa Julie kom til Húsavíkur í dag
Geisli SK 66
7443. Geisli SK 66 ex Katrín ÞH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Katrín SK 66 frá Hofsósi kemur hér að landi á Dalvík um helgina en báturinn tók þátt í sjóstangveiðimóti sem þar fór fram. Geisli, sem gerður er út af Geislaútgerðinni ehf. hét upphaflega Ósk HF 860 og var smíðaður árið 1996 í Bátasmiðju … Halda áfram að lesa Geisli SK 66
Sædís EA 54
6936. Sædís EA 54 ex Sandvík GK 73. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Grímseyjarbáturinn Sævík EA 54 kemur hér að landi á Dalvík í gær en það er Sterta ehf. sem gerir hann út. Um bátinn má lesa nánar hér en hann var smíðaður í Bátasmiðju Guðmundar árið 1987. 6936. Sædís EA 54 ex Sandvík GK … Halda áfram að lesa Sædís EA 54
Dögun
7827. Dögun kemur að landi á Dalvík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. RIB hvalaskoðunarbáturinn Dögun var á ferðinni meðan ég stoppaði á Dalvík í gær. Báturinn er gerður út af Artcic Sea Touts ehf. á Dalvík sem gerir einnig út eikarbátana Draum og Mána. Dögun er af árgerð 2017 og rúmlega 12 metrar að lengd. 7827. … Halda áfram að lesa Dögun
Særún EA 251
2793. Særún EA 251 ex Nanna Ósk II SU 90. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Þessar myndir af Særúnu EA 251 voru teknar á Dalvík í dag en báturinn tók þátt í sjóstangveiðimóti um helgina. Særún EA 251 var keypt frá Fáskrúðsfirði í vor en báturinn hét áður Nanna Ósk II. Það var Útgerðarfélagið Stekkjavík ehf. … Halda áfram að lesa Særún EA 251
Hafaldan EA 190
2326. Hafaldan EA 190 ex Konráð eldri EA 190. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Grímseyjarbáturinn Hafaldan EA 190 kemur hér að landi á Dalvík í dag en báturinn tók þátt í sjóstangveiðimóti um helgina. Báturinn hét upphaflega Hópsnes GK 118 og var smíðaður árið 1998 fyrir Stakkavík í Grindavík. Smíðin fór fram í Bátagerðinni Samtak í … Halda áfram að lesa Hafaldan EA 190
Rún EA 351
2711. Rún EA 251 ex Særún EA 351. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Rún EA 351 kemur hér til hafnar á Árskógsandi í dag eftir siglingu frá Dalvík. Báturinn, sem er af gerðinni Siglufjarðar-Seigur, var smíðaður á Siglufirði árið 2007 og hét upphaflega Lúkas ÍS 71 og var í eigu Álfsfells ehf. á Ísafirði. Síðar, eða … Halda áfram að lesa Rún EA 351
Arnar ÁR 55
162. Arnar ÁR 55 ex Bliki EA 12. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hérna má sjá Arnar ÁR 55 í slipp í Hafnarfirði um árið en upphaflega hét báturinn Ólafur Tryggvason SF 60 og var smíðaður í Noregi 1960 fyrir Tryggva Sigjónsson h/f á Hornafirði. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri … Halda áfram að lesa Arnar ÁR 55









