1553. Jón Baldvinsson RE 208. Ljósmynd Þór Jónsson. Þessa flottu mynd af skuttogaranum Jóni Baldvinssyni RE 208 tók Þór Jónsson á Djúpavogi. Jón Baldvinsson RE 208 var smíðaður fyrir Bæjarútgerð Reykjavíkur í Portúgal og kom til landsins í júnímánuði það ár. Í 9 tbl. Ægis 1980 segir svo: Nýr skuttogari, m/s Jón Baldvinsson RE-208, bœttist … Halda áfram að lesa Jón Baldvinsson RE 208
Flokkur: Togarar
Berglín GK 300 á toginu
1905. Berglín GK 300 ex Jöfur ÍS 172. Ljósmynd Þór Jónsson 2018. Þór Jónsson skipverji á Ljósafelli SU 70 tók þessar myndir sem nú birtast og sýna skuttogarann Berglín GK 300 að veiðum. Berglín GK 300, sem er í eigu Nesfisks hf. í Garði, var smíðuð í skipasmíðastöðinni Stálvík í Garðabæ og hét upphaflega Jöfur … Halda áfram að lesa Berglín GK 300 á toginu
Svalbakur EA 2 á toginu á Flæmska
2220. Svalbakur EA 2 ex Cape Adair. Ljósmynd Ómar Örn Jónsson. Svalbakur EA 2 er hér á toginu á Flæmska hattinum um árið en myndina tók Ómar Örn Jónsson skipverji á Þórunni Havsteen ÞH 40. ÚA keypti togarann frá Kanada og kom hann í fyrsta skipti til heimahafnar á Akureyri þann 22. apríl 1994. Um … Halda áfram að lesa Svalbakur EA 2 á toginu á Flæmska
Þórunn Havsteen ÞH 40 á Flæmska
1462. Þórunn Havsteen ÞH 40 ex Júlíus Havsteen ÞH 40. Ljósmynd Ómar Örn Jónsson. Það er alltaf gaman að fá pakka og verra ef þeir innihalda skipa- eða bátamyndir eins og sá sem Ómar Örn Jónsson sendi mér í dag. Ómar Örn var skipverji á Þórunni Havsteen ÞH 40 og eru þesar myndir úr fyrsta … Halda áfram að lesa Þórunn Havsteen ÞH 40 á Flæmska
Hólmanes SU 1
1346. Hólmanes SU 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Hér er Hólmanes SU 1 að koma til hafnar á Húsavík snemma árs 2004 og var togarinn á leið í slipp, sennilega til Akureyrar. Til baka kom hann sem Húsey ÞH 382. Hólmanesið var smíðað á Spáni og kom til heimahafnar á Eskifirði 7. febrúar það árið … Halda áfram að lesa Hólmanes SU 1
Árbakur EA 308
2154. Árbakur EA 308 ex Natsek. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Árbakur EA 308 liggur hér utan á Kolbeinsey ÞH 10 við slippkantinn á Akureyri. Myndin er tekin um jólahátíð, og er mér næst að halda að Árbakur hafi þarna verið nýkominn í flotann. Hann var keyptur til landsins árið 1991 og kom til Akureyrar 18. desember … Halda áfram að lesa Árbakur EA 308
Bergur VE 44 á miðunum í dag
2677. Bergur VE 44 ex Brodd 1. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir í morgun af togaranum Bergi VE 44 þar sem hann var á toginu fyrir austan land. Bergur VE 44 var smíðaður í Danmörku árið 1998 en Bergur ehf. keypti hann til landsins frá Noregi haustið 2005. Bergur VE 44, … Halda áfram að lesa Bergur VE 44 á miðunum í dag
Hegranes SK 2 á toginu
1492. Hegranes SK 2 ex Rockall. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Hegranes SK 2 frá Sauðárkróki er hér á toginu einhvern tímann um 1990. Hegranesið var smíðað árið 1975 í Póllandi en keyptur til Íslands frá Lorient í Frakklandi árið 1977. Það var Útgerðarfélag Skagfirðinga sem keypti togarann og kom hann til heimahafnar á Sauðárkróki 4. … Halda áfram að lesa Hegranes SK 2 á toginu
Kaldbakur EA 1 á frostköldum morgni
2891. Kaldbakur EA 1. Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2019. Gundi tók þessar myndir í morgun þegar Kaldbakur EA 1 sigldi af stað frá Akureyri áleiðis á miðin. Það var kalt við Eyjafjörð eins og sjá má á þessum myndum. 2891. Kaldbakur EA 1. Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2019. Kaldbakur var fyrstur í röðinni af fjórum systurskipum sem … Halda áfram að lesa Kaldbakur EA 1 á frostköldum morgni
Breki og Akurey að veiðum
2861. Breki VE 61. Ljósmynd Trausti 2019. Gundi á Frosta, sem þessa dagana er á Kaldbak EA 1, sendi mér þessar myndir sem Trausti stýrimaður á EA 1 tók í gær. Þær sýna annars vegar Breka VE 61 og hinsvegar Akurey AK 10 að veiðum. Breki smíðaður í Kína en Akurey í Tyrklandi. 2890. Akurey … Halda áfram að lesa Breki og Akurey að veiðum









